Menntamál - 01.12.1946, Blaðsíða 40

Menntamál - 01.12.1946, Blaðsíða 40
174 MENNTAMÁL vetur um fimmtugt. Franskur her hafði brennt smáborgina Stanz 1798, og tók þá Pestalozzi að sér að sjá húsnæðis- lausum börnum fyrir umhirðu. Honum var fengið hálf- hrunið klaustur til umráða og eina vinnukonu fékk hann sér til aðstoðar, en börnin urðu skjótt fjörutíu, — fimm- tíu, — áttatíu, — rifin, lúsug, horuð, veik, undirförul og vanþakklát. Hann þreif þau, fæddi þau, hjúkraði þeim, kenndi þeim og mannaði þau. Áhugi hans og eldmóður var dæmalaus. Hann vann þarna afrek, sem er einstætt í allri sögu uppeldismálanna, því að eftir fimm mánuði, þeg- ar hann varð að hætta vegna þess, að klaustrið var tekið fyrir hermannaspítala, voru börnin með öllu óþekkjan- leg, svo miklum framförum höfðu þau tekið í útliti og framkomu. Hins vegar var Pestalozzi að þrotum kominn af ofreynslu. Skömmu síðar er Pestalozzi orðinn aðstoðarkennari þar, sem heitir Burgdorf, skammt frá Bern. Yfirkennari hans var skósmiður að iðn, og þótti honum nóg um áhuga Pestalozzi á starfinu og amaðist við nýbreytni hans í að- ferðum. Hvarf Pestalozzi þá að smábarnaskóla, sem kona nokkur stjórnaði. En nokkru síðar var honum fengin stjórn heimavistarskóla, er komið var upp í gamalli höll í Burgdorf. Starfaði hann þar um þriggja ára skeið (1801- 1804) og jók enn orðstír sinn. Árið 1801 kom út bók hans Hvernig Geirþrúður kenndi börnum sínum. Gerist hann þar eldheitur formælandi alþýðumenntunar, en hún hafði verið með öllu vanrækt áður. Hann segir meðal annars í þessari bók, að ekki sé þörfin mest að draga skólavagn Evrópu fastar en verið hafi, heldur þurfi að fara með hann inn á nýjar leiðir. Og hann bendir á leiðirnar. Fyrst og fremst beri að líta á uppeldið frá félagslegu sjónarmiði. Skólinn sé þó ekki aðeins undirbúningur undir lífið, held- ur einnig þáttur úr lífinu sjálfu. Ekkert bil megi vera milli skóla og heimilis, heldur eigi skólinn að vera hlið- stæða og framlenging heimilisins. Uppeldisfræðingur einn,

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.