Menntamál - 01.02.1948, Qupperneq 26

Menntamál - 01.02.1948, Qupperneq 26
20 MENNTAMÁL virtust samhuga um að notfæra skilyrðin, þótt erfið væru, sem bezt til hagsbóta fyrir nemendurna. Sýndist mér starfsgleði kennara og nemenda miklu meiri en við mátti búast, þegar borin var saman aðstaða þeirra og hinna, sem höfðu nýtízku skólahús og leikvelli til umráða. Þetta var lærdómsríkt. Mun voru þau skólahús fleiri, er ég skoðaði, sem prýði- lega voru gerð og vel útbúin að öllu leyti. Flest voru þau í þeim hluta borgarinnar, sem byggðir hafa verið á síðari áratugum. Meðal þeirra skóla, sem mesta athygli mína vöktu, var nýr menntaskóli fyrir um 700 stúlkur. (The Manning School.) Þar voru alls um 30 kennslukonur — en enginn karlmaður. Verklegt nám skipaði þar veglegan sess. Allar almennar skólastofur voru á einni hæð, í álmu- byggingum, en handavinnustofur og bókasafn á 2. hæð í þeim hluta bygginganna, sem var tvær hæðir. Skóla- stofur allar voru bjartar og rúmgóðar, en sérkennilegt þótti mér þar, að enginn skólagangur var innan dyra að kennslustofum, heldur beint úr skólagarðinum og var gott regnskýli yfir dyramegin í stað gangs. Ekki mundi slíkt henta hér, og var það aðeins gert þar í tilraunaskyni. Aðstaða til alls konar úti- og innileikja var sérlega góð. Skólinn er í útjaðri borgarinnar. Sá skóli, sem mér er einna minnistæðastur af öllum þeim skólum, er ég sá þennan dag, er „The Players School“. Hann var byggður 1937—40. Þetta eru í raun og veru 6 skólar, sem byggðir eru miðsvæðis í nýju og fjölmennu hverfi, sem aðallega er byggt handa verkamönnum og iðnaðarmönnum. Bendir nafn skólans til þess, að vindl- ingaverksmiðjur Players eigi þarna hlut að máli. Skólar þessir hafa mjög víðáttumikið landrými til umráða. Allt eru þetta einnar hæðar hús, flest sambyggð eða samtengd og koma leikfimissalir, borðsalir o. þ. u. 1. milli sjálfra skólanna og leikvellir þar inn á milli. Tvö skólahús eru fyrir smábarnaskóla, 2 fyrir eldri börn og 2 fyrir unglinga.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.