Menntamál - 01.02.1948, Qupperneq 28

Menntamál - 01.02.1948, Qupperneq 28
22 MENNTAMÁL Síðasta kvöldið, sem ég var í Nottingham, var ég heima hjá Mr. Mason í kveðjuskyni. Hann býr ásamt konu sinni og 12 ára dóttur í útjaðri borgarinnar. Þar var einnig fulltrúi sá, er umsjón hafði með útlánsdeild skólabóka (les- flokka) mynda- og kvikmyndasafni fræðslumálaskrifstof- unnar o. fl. Það er vart miðaldra kona, harðdugleg og ákveðin. Hún hafði víða farið — m. a. til Þýzkalands á milli heimsstyrjaldanna. Þegar daman komst að raun um, að ég hafði dvalizt á sumum þeim stöðum í Þýzkalandi, sem hún heimsótti þar, spurði hún mig, hvort ég vildi ekki tala við sig á þýzku. Það væri svo langt, síðan hún hefði talað það mál. Þótt e. t. v. sé skömm frá því að segja, þá naut ég þess, að hún hafði mun meir fyrir þýzkunni en ég. Það var af því, að hún fann þá vel, að það er svo sem ekki sjálfsagt, að það sé fyrirhafnarlaust að mæla, heyra og skilja framandi tungur, og á það þá eigi hvað sízt við enskuna! Nóg um það. Daman ók mér á gistihúsið og kvaddi mig með: Aufwiedersehen! Sunnudeginum 11. maí var eigi ráðstafað til annars en að komast til Leeds. Lagt skyldi af stað kl. 13.37. Sunnu- dagsmorguninn var eini tíminn, meðan ég dvaldist í Nott- ingham, sem ég gat ráðskazt með án fyrirframgerðrar áætl- unar. Að loknum morgunverði labbaði ég um nokkrar götur bæjarins, leit í búðarglugga og athugaði umferðar- venjur barna og unglinga. í búðargluggum var margt að sjá. Virtist þar ekki bera á vöruskorti, en flest var skammt- að, og sýndi miði á hverju og einu, hve marga skömmtun- armiða (einingar) þyrfti fyrir hverju um sig. Væntan- legir kaupendur gátu því vitað, áður en þeir fóru inn, hve marga miða þeir þyrftu að láta fyrir vöruna og sparað með því töf og fyrirhöfn í afgreiðslu. Þegar ég hafði rölt um stræti og torg nokkra stund, leigði ég stöðvarbíl til þess að fara með dótið mitt á járn- brautarstöðina. Þar eð dágóður tími var svo til hádegis- verðar og bílstjórinn talaði um að lítið væri að gera, fékk

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.