Menntamál - 01.05.1952, Side 8

Menntamál - 01.05.1952, Side 8
46 MENNTAMÁL Verknámsdeild gagnfræðastigsins í Reykjavík MikilsverSustu nýmæli fræðslulaganna frá 1946 voru vafalaust þau, að stofna skyldi verknámsdeildir við gagn- fræðaskólana. Þau rök, sem að því hnigu, voru svo knýj- andi, að gegn þeim varð ekki staðið af neinni skynsemi. Sú breyting var sem óðast að gerast á aðsókninni að fram- haldsskólunum, að þangað sótti langtum meiri hundraðs- hluti úr hverjum aldursflokki unglinga en tíðkazt hafði fyrir svo sem einum áratug. I sumum bæjum var jafnvel svo komið, að um 80 af hverjum hundrað þeirra barna, sem fullnaðarprófi luku, sóttu framhaldsskóla. Þessi aukna aðsókn að framhaldsskólunum á vafa- laust rætur að rekja til þeirra breytinga, sem orðið hafa á atvinnuháttum þjóðarinnar. Um og fyrir síðast liðin alda- mót stundar meginhluti þjóðarinnar atvinnu, sem ungling- arnir læra á heimilum sínum af feðrum og mæðrum eða á nálægum vinnustöðum. Og atvinnan krefst einskis und- irbúningsnáms. Verktæknin er einföld, og unglingarnir geta orðið sæmilega liðtækir langt innan við fermingar- aldur. Síðan gerist það, að upp rísa fjölmennar starfsgreinar, sem áður höfðu ekki þekkzt, margvísleg iðja og iðnaður, siglingar og hvers konar sjósókn heimta til sín fjölda kunnáttumanna í verklegum efnum, skipstjórnarmenn, vélstjóra, loftskeytamenn o. s. frv., sömuleiðis sími og póstur, verzlun o. fl. o. fl. Hin fábrotnu störf verða sí og æ minni þáttur í atvinnulífinu. Vinnutækin í fæstum starfs- greinum eru að verða barnameðfæri.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.