Menntamál - 01.05.1952, Side 20

Menntamál - 01.05.1952, Side 20
58 MENNTAMÁL stofnanirnar þvílíkt bákn, að reynast mun mjög erfitt og seinlegt verk að færa rekstur þeirra í æskilegt horf. Mun torvelt að endurmennta starfsfólk þeirra og innræta því annan skilning á þörfum barnsins og temja því nýjar starfsaðferðir. Loks eru allar endurbætur mjög komnar undir skilningi allra þeirra ráðamanna, sem fara með mál þessara stofnana og hafa yfirstjórn þeirra á hendi. Þessi ráðstefna átti í því sammerkt við aðrar af slíku tæi, að á henni kom ekkert nýtt fram í þeim skilningi, að þar væri skýrt í fyrsta sinni opinberlega frá merkum rannsóknarniðurstöðum. Megingildi slíkra móta er miklu frekar í því fólgið, að mönnum verða aðalviðfangsefnin eða vandamálin ljósari en áður. Þeir fá tækifæri til að ræða þau persónulega hver við annan og miðla hver öðr- um af reynslu sinni, auka víðsýni sitt — og síðast en ekki sízt fá þeir uppörvun og hvatningu til starfs.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.