Menntamál - 01.04.1965, Page 11
MENNTAMÁL
5
gjöf hafði í för með sér miklar endurbætur á skólakerfinu,
sérstaklega í dreifbýlinu og varðandi kennslu afbrigðilegra
barna. Skólaskyldan er nú 8 ár, 6 ára barnaskóli og 2ja ára
unglingaskóli. Með lögum frá 1962 var sveitarstjórnunum
veitt heimild til að bæta frjálsum Sja bekk við unglinga-
skólann.
Það hefur valdið ýmsum örðugleikum og glundroða, að
samhliða ríkisreknu framhaldsskólunum eru starfræktir
margir einkaskólar. Flestir menntaskólanna eru t. d. einka-
skólar, og þeir taka við nemendunum úr 4. eða 5. bekk
barnaskólanna rneð' samkeppnisprófi. Þeir, sem ekki ná
próli eða hafa ekki fjárráð til að greiða skólagjöld, halda
áfram í ríkisskólunUm.
Finnsku kennarasamtökin hafa unnið markvisst að því
um árabil, að tekin sé upp 9 ára skólaskylda í samlelldum
skóla (líkt og í Svíþjóð), sem rekinn væri af sveitarlélögun-
um með ríkisstyrk. Þrátt fyrir harðvítuga andstöðu einka-
skólanna hefur málið ldotið stuðning þings og þjóðar, og
árið 1964 var sett niður nelnd til að undirbúa nýtt sam-
ræmt skólakerfi með 9 ára skólaskyldu á grundvelli tillagna
kennarasamtakanna.
/ Danmörku var ný skólalöggjöf sett árið 1958. Skóla-
skylda er enn 7 ár þar í landi. Hin nýja löggjöf hefur leitt
til þess:
1) að nálega öll börn njóta kennslu 240 daga á ári (áður
sóttu börn í sveitum og þorpum skóla aðeins annan
hvorn dag).
2) að öllum börnum er kennt erlent tungumál 6. og 7.
skólaárið.
8) að öll börn, livort sem þau búa í sveit eða borg, hafa
sömu möguleika á framhaldsnámi (eftir 7 ára skóla-
skyldu).
/ Noregi var talið heppilegt, af hagrænum, pólitískum,
uppeldislegum og félagslegum ástæðum, að lengja skóla-
skylduna í níu ár fyrir öll börn.