Vorið - 01.09.1945, Blaðsíða 21
V O R I Ð
83
Barnastúkan Eyrarrós í Siglufirði að koma af fundi. Hún er nú fjöfmennasta barna-
stúka Iandsins, telur 450 félaga og starfar al miklu fjöri og myndarskap. — Gæzlu-
maður er frú Þóra Jónsdóttir.
Sam tal.
l’ERSÓNUR: Pabbi og Dengsi
(tveggja ára).
I’ABBI: Hvað eigum við að gera l il
að skemmta okkur?
DENGSI: Sýnclu mér myndir.
PABBI: Já, það skal ég gera. Nú
:etla ég að sýna þér myndir úr
dýrafræðinni og vita, hve mörg
dýr þú þekkir.
DENGSI: Úr minni bók?
PABBI: Já, úr þinni bók. Hvaða
dýr er þetta?
DENGSI: Api, og hitt líka api.
PABBI: Ab'eg rétt. En hvað er
þetta?
DENGSI: Vettlingur apans.
PABBI: Nei, góði minn. Þetta eru
hendurnar á apanum. En hvað
heitir þetta dýr?
DENGSI: Ljótt, — ljótt.
PÁBBI: Nei, þetta er tígrisdýr. F.n
það er rétt, það er ljótt. En hvaða
dýr er þetta?
DENGSl: Þetta er kisa.