Vorið - 01.09.1945, Blaðsíða 22
V O R I Ð
SNORRI SIGFÚSSON:
Á Tröllaheiði.
Við vorum komnir í skíðaskálann
og búnir að skafa ai: okkur snjóinn.
Skíðafærið var ágætt og veðrið
stillt og bjart. Það hafði verið hríð-
arveður um daginn, þegar við lögð-
urn af stað, og tvísýnt útlit, en fór
batnandi, er kvölda tók.
Við höfðum búið okkur vel,
klæddir því nær eingöngu ullarföt-
um frá hvirfli til ilja, með luið-
jrykka ullar-belgvettlinga á höndum
og rúmgóða skó á fótum.. Og þá
voru höfuðfötin heldur ekki neitt
óhræsi, skal ég segja ykkur. Það
voru íslenzkar skinnhúfur með
prjónuðu ullarfóðri og huldu því
nær allt höfuðið nema augu, munn
og nef.
Sá, sem er þannig lniinn, getur
ókvíðinn lagt út í tvísýnt veður. Þá
er aðeins að gæta þess að ofþreyta
sig ekki og reyna að halda réttri
stefnu. Og sá, sem villist, á strax að
grafa sig í fönn. Það er hættulaust
fyrir vel búinn og lítt þreyttan
mann.
Þetta hafði Fjalla-Fúsi marg sagt
okkur strákunum, og hann mátti
úr flokki tala, ]>ví að lrann hafði oft:
PABBI: Nei, Jretta cr otur. Hvað er
bann að gera?
DENGSI: Að borða fisk og kartöfl-
ur.
PABBI: Nei, ekki kartöflur, bara
fisk. Hvað er jretta?
DENGSI: Með nefið sitt.
PABBI: Nei, þetta er nashyrning-
ur. Mundu nú það.
DENGSI: Já, nashyrningur. Fg
skal muna það.
PABBI: Hvaða stóra dýr er þetta?
DENGSI: Þetta er fíll með krakk-
ann sinn.
PABBI: Það er alveg rétt. En þetta?
DENGSI: Þetta er lréri, og hann er
að detta.
PABBI: Rétt, en hann er ckki að
detta. Hann hleypur bara svona
hart. En hvaða fugl er jretta?
DENGSI: Kroppaðu með mér,
krunk, krunk.
PABBI: Já, þetta er krummi. En
livaða fugl er þetta?
DENGSI: Köngurló.
PABBI: Nei, góði minn. Þetta er
lóa, mundu nú það.
DENGSI: Já, ég mundi að j>að var
cinbver lóa.
PABBI: Jæja, þetta er nú nóg í dag.
Svo skulum við skoða dýrin bet-
ur á morgun.
E. S.