Vorið - 01.09.1945, Blaðsíða 33

Vorið - 01.09.1945, Blaðsíða 33
VORIÐ 95 niður? Og svo er ég líka hrædd um að mönnum sé farið að leiðast eftir ntér.“ Þá skellihló karlinn og sagði: ’.Ha, ha, það verður nú ekki af því, góða mín, því að hérna áttu nú að vera á meðan þú tórir.“ Eg gekk eftir karlinum, en hann lét sig ekki. Þegar allir voru sofnaðir um kvöldið, fór ég að leita að stiganum. Eg leitaði lengi, lengi þangað til ég kom að hlera í gólfinu. Eg opnaði liann og þar var stig- nin. Það var nefnilega stigi, sem hægt var að draga sundur og saman. Eg negldi nú niður staur og batt stigann við hann og fór að ganga ’tiður. E n þegar ég var komin alveg ;i endann á stiganum, þá náði hann c'kki niður, því að tunglið var hasrra á lofti en þegar ég fór upp. Eg lét mig þess vegna detta, en |);ið var lengra en ég bjóst við. Ég sveif í lausu lofti, þangað til ég konr niður á eitthvað hart. Og þá vakn- aði ég við það, að ég datt niður úr vtiminu og niður á gólf. Lilý Adamsdóttii . ★ Vaglaskógur. ^ vordegi björtum ég Vaglaskóg leit, er vaknaði jurtin á bala. Og snaerinn var horfinn úr sérhverri sveit a sjávarströnd jafnt og til dala. Þá fuglarnir kváðu sinn fegursta söng, beir fjölda af ljóðunum kunnu. Ég heillaður gekk inn í hlynviða göng í hjartanu ylgeislar brunnu. Þarna var friður og þarna var kyrrð, í þögulum bjarkanna sölum. En ærslabrögð heimsins ei úti’ eru byrgð þar úði af sprundum og hölum. I frístundum sínum oft flýja menn torg, og flykkjast í Vaglaskóg allir. Burtu frá skemmtan og skarkala borg í skógarins ilmandi hallir. Blærinn strauk þýðlega bjarkanna krans, svo bylgjuðust skóglaufin grænu. Það var sem þær kinkuðu kolli til manns, og kvökuðu þrestirnir vænu þar uppi í greinunum áttu sér bú og önnuðust börnin sín smáu. Karlarnir drógu að dagverð með trú, en „dömur“ í hreiðrunum lágu. Fnjóskáin þýðlega orti sinn óð, hún orti um fegurð og blíðu. Hún vökvaði blómin á bakkanum hljóð með blátæru vatninu þýðu. Og niðurinn barst upp í bjarkanna göng, og blandaðist fuglanna kvaki. Og heyri ég ennþá hinn heillandi söng hátypptum fjöllum að baki. Með söknuði ég kvaddi hinn söngríka skóg, þá sólin til vesturs var gengin. Og voldug hún dýrðlega draumblæju óf um dalsfjöllin háu og engin. Af heiðinni björtu ég horfði um stund yfir hýran og svipfríðan dalinn. Þar sá ég við blasa hinn litauðga lund, af löngun var hugur minn kvalinn,

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.