Vorið - 01.09.1945, Page 27

Vorið - 01.09.1945, Page 27
VORIÐ 89 að hreyfast. En ekki var það neitt að ráði. Þá reiddist Hans, lank upp glugganum, leit út í bláinn og taut- aði. En í því bili sér hann mikinn sæg af vængjuðum loftöndum, sem llögruðu allt í kringum mylluvæng- ina og blésu. Honum varð fyrst liverft við þessa sjón og horfði þegj- andi á hana. En síðan dettur hon- um í hug, að þetta kunni að vera einhvers konar lifandi vindbelgir, sem sendir sétt lionum til hjálpar. En hvernig sem þeir blésu og tútn- uðu út af áreynslu, gátu þeir ekki komið neinni hreyfingu á myllu- vængina. Þá gat Hans ekki lengur setið á sér, teygði sig út úr glugganum og kallaði í hópinn: „Miklir ónytjungar eruð þið! Getið þið ekki blásið, strákar, svo að mér nægi?“ Loftandarnir litu við og fitjuðu upp á, hv'or framan í annan, en síð- an sneru þeir bakinu að Hans. Þá kallaði hann: „Heyrið, snáðar, skilið til hans föður ykkar, að ég biðji hann að koma sjálfan, því að þið eruð svo handónýtir." Loftandarnir kinkuðu kolli og hlógu að þessu. Þá lrugsaði Hans méð sjálfunt sér, að það væri óska- >'áð, ef liann gæti handsamað svo sem 12 af þessurn vindbelgjum, til þess að hafa þá heldur en ekki neitt, þegar Stormur hefði ekki tíma til að' konha sjálfur. Hann seildist þá út úr glugganum og ætlaði að ná í vængina á þeim, sem næstir voru, en hann var ekki nógu handfljótur, því að þeir hrukku frá eins og ör- skot og sögðu hinum félögum sín- um frá, hvílíkur hrekkjalómur Hans væri. Síðan hvísluðust. þeir á stundarkorn og flugu svo burt. En þá kallar Hans: „Æ, i'arið ekki burt, snáðarnir mínir góðu. Lítið er betra en ekki par, og ég skal ekki oftar glettast við ykkur. Hinir héldu áfram eigi að síður, svo að Hans varð að láta sér nægja að kalla á eftir þeim. Bað hann þá fyrir hvern mun að gleyma ekki, hvar hann byggi og skila því síðan til Storms, föður jæirra, að senda hið allra fyrsta stöðugan og snarpan vind. Nú stóð myllan aftur og gat ekki rnalað, og Hans tók ekki á heilum sér af gremju yfir því, að hann hafði ekki getað fest höndur á vindbelgjunum litlu. Á nóttunni dreynrdi hann ekki um annað en vængjaða loftanda og vindbelgi, og á daginn huggaði liann sig við það, að hann kynni þó að fá vind fyrir skilaboðin, sem hann hafði sent með þeim. Þegar nú sífelldir þurrk- ar bættust ofan á lognið, og aldrei kom deigur dropi úr lofti, svo að allar jurtirnar í garðinum voru lagstar út af, þá rnátti segja. að armæðan reið ekki við einteyming þar, sem Hans átti hlutinn að. Kvöld eitt liafði Hans farið að heiman með mestu ólund, lil að biðja kunningja sinn að lána sér fá-

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.