Vorið - 01.09.1945, Page 32

Vorið - 01.09.1945, Page 32
VORIB UR HEIMI BARNANNA Þegar ég fór upp í tunglið. Ég fór nú reyndar ekki almenni- lega upp í tunglið, en ég fór þang- að einu sinni í draumi. Mig dreymdi, að ég væri á gangi uppi á háu fjalli. Þá kom til mín karl, heldur enekkiófrýnilegurmeð skegg niður á bringu og úfið hár, því að sjálfsagt hefur hann aldrei greitt sér. Þegar ég sá hann, var víst næsturn liðið yfir mig. En þegar ég hafði jafnað mig eftir mestu hræðsluna, spurði ég, hver hann væri. En hann sagði, að liann væri karlinn í tunglinu, og spurði, hvort ég vildi koma með sér upp í tungl- ið. Ég var til í Jrað. Svo lögðum við af stað. Brátt komum við að mjög háum stiga, og gengum upp hann. Eftir langa mæðu komumst við upp. Sá ég þá hús eitt úr torfi, og ]>angað fórum við. Þar stóð kerling yl'ir grautarpotti og hrærði í. Hún sagði um leið og við komum inn: „Hvaða stelpu kemurðu nú þarna með?“ „O, Jrað er nú bara mannheims- búi,“ svarar karl. „Nú, ])að er svoleiðis," segir kerl- ing. En við mig sagði hún: „Það er víst bezt, að Jjú farir að koma Jrér í bólið, greyið. Þú getur kannað tunglið á morgun.“ Ég féllst á það, því að ég var orð- in lúin. Morguninn eftir fór ég snemma á fætur til þess að skoða tunglið. En um miðjan daginn fór mig að langa heim. Ég sagði Jrví við karlinn: „Mig er farið að hálf langa heim, heldurðu að Jdú vildir ekki lána mér stigann, til þess að fara

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.