Vorið - 01.09.1945, Qupperneq 34

Vorið - 01.09.1945, Qupperneq 34
96 VORIÐ En svo, þegar eygði ég Súlunnar tind, og sólgljáðan, lognsléttan fjörðinn, blasti við fögur og fullkomin mynd, þau föðmuðust hafið og jörðin. Langt út á firði sást Hríseyjan há hjúpuð í bláleita móðu. Og borgin á ströndinni blasti við þá, þar byggingar háreistar glóðu. Kristján Tryéévi Jóhannsson. (Vorið hefur áður birt tvö kvæði eftir þennan unga höfund, sem nefndi sig þá Hlyn). ★ Orðaþraut. lóð. par. lár. ala. rak. Fyrir framan hvert þessara orða á að setja einn staf, svo að ný orð myndist. Séu þeir stafir lesnir ofan frá og niður eftir, myndast nýtt orð. Það er algengt bæjarnafn. Blómanöfn. Só----y. F------1 —. B-------i- — ó —. B----u------1----■ l>----d- ------b-------. T-------s-------. S-----r —. L-------b------r-----. B-----g-----s -. G--------i-----a- ----a — p-----. T-----u------a —. Hr----n — k--------k —. Ey------r- Guðrún Sigríður Zophoníasardóttir (11 ára), Blönduósi. VORIÐ tímarit fyrir börn og unglinga. Koma út 4 hefti á ári, minnst !i‘4 síður hvert hefti. Árgangurinn kostar kr, V00 og greiðist fyrir 1 maí. Útgefendur og iitstjórar: Hannes J. Magnússon. Páls Briems- götu 20 Akureyri, og Eirfkur Sigurðsson, Hrafnagilsstr. 12, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. Ráðning á dægradvöl í 2. hefti. 1. 28 börn voru í bekknum. 2. Hér eru nokkur orð, sem merkja sama og stúlka: mær, meyja, fljóð, snót, drós, svanni, baugalín o. m. fl. 3. Fjallkonan = ísland. Mögum af mögur = sonur. Gumar = menn. Mær = stúlka. GAMAN OG ALVARA. „Stamar þú vegna þess, að þú hugsir fljótar en þú talar?“ „Nei, ég sta-stama vegna þess, að fólk reynir að heyra það, sem ég er að se- segja, áður en ég hef lokið við að s-segja það.“ ----o----- „Þegar litið er til barnanna, lítur út fyrir, að við séum farnir að eldast, Jón. Nú er Kristinn yngsti sonur minn orð- inn afi.“ ----o----- Eins og kunnugt er hafa Múhameðs- trúarmenn annan tímareikning en við. Við miðum ártölin við fæðingu Krists, en þeir við flótta Múhameðs frá borginni Mekka árið 621. Þeirra ártal er því 1324. ----O-----

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.