Bjarmi - 01.12.1998, Síða 3
r
STALDRAÐ VIÐ
Kristilegt tímarit
Útgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Guðmundur Karl Brynjarsson
og Kjartan Jónsson.
Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,
pósthólf 4060,124 Reykjavík,
sími 588 8899, bréfsími 588 8840.
Árgjald: Kr. 2.800,- innanlands, kr. 3.300,
til útlanda. Gjalddagi 1. mars.
Verð í lausasölu kr. 500,-.
Umbrot og útlit: Áhrif ehf, Kringlunni 6.
Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja.
4Gunnar J. Gunnarsson ræöir
viö Benedikt Gunnarsson
listmálara um listina, lífiö og
trúna.
/f,
JA Rúna Þráinsdóttir ræöir viö
Iw Herdísi Hallvarösdóttur
tónlistarmann um nýútkominn
geisladisk og kynni hennar af
kristinni trú.
MGuölaugur Gunnarsson
fjallar um hafiö út frá
Biblíunni í grein sinni
Golfstraumurinn lofar Guö.
Sr. Bjarni Karlsson fjallar um
1W sióferói í sjávarútvegi í
greininni Hafió og allt sem í því er.
gá Fermingarnámskeið í Vatna-
I «7skógi er umfjöllunarefni
Ragnars Schrarn, auk þess sem
hann tók viötöl viö þátttakendur.
AA Guömundur Karl Brynjars-
son ræöir við Björgvin
Jörgensson kennara og stofnanda
KFUM á Akureyri.
AA Gunnar J. Gunnarsson ræöir
Wa viö Sigurbjörn Þorkelsson,
nýráöinn framkvæmdastjóra KFUM
og KFUK í Reykjavík
AA - Einar Sigurbergur Arason
WW ræöir viö Kristjönu
Eyþórsdóttur um aðventuna á
heimilunum.
Trú og list eiga sér langa sögu sam-
fylgdar. Þegar kemur að tjáningu trúar
og tilbeiðslu er gjarnan sótt til litstar-
innar. Hún felur í sér sterkan tjáning-
armáta sem getur túlkað dýpstu sann-
færingu og tilfinningar á áhrifaríkan
hátt. Þannig túlkar listamaðurinn eigin
sýn á veruleikann, tilfinninga átök sín
og trúarlegt innsæi og sannfæringu
með verkum sínum, hvort sem við
erum að tala um myndlist, tónlist, bókmenntir eða aðrar tegundir list-
ar. Um leið hafa verk hans áhrif á þá sem sjá eða heyra þannig að það
vekur til umhugsunar um stöðu mannsins í tilverunni og andspænis
Guði, trú hans og tilvistarglímu. Lisin er þannig sterkt aíl sem snertir
dýpstu strengi mannssálarinnar og stuðlar að trúarlegri reynslu og
þroska.
Kirkjan hefur alla tíð nýtt sér listina með ýmsum hætti til að tjá og
túlka kristin trúarsannindi og í tilbeiðslu sinni og lofgjörð til skapar-
ans. Um það vitnar mikill fjársjóður trúarlegra listaverka. Eflaust má
þó gera betur þannig að hún nýti sér áhrifamátt listarinnar enn frekar
í boðun trúar og í tilbeiðslu.
í þessu sambandi má velta fyrir sér læsi okkar íslendinga á trú-
ararfinn og trúarlega list þar sem hún er uppfull af táknum og vísun-
um í heilaga ritningu. Svo virðist sem við séum frekar illa að okkur á
þessu sviði í samanburði við nágrannaþjóðir og skynjum því að tak-
mörkuðu leyti ótal listaverk sem túlka kristin, trúarleg sannindi.
Ástæðan er meðal annars sú að skólakerfið sinnir þessum þætti illa.
Fyrr á þessu ári var bent á það í Bjarma að íslenski framhaldsskólinn
sneyðir svo til algjörlega hjá allri fræðslu um kristni og önnur trúar-
brögð. Því vantar nánast öll tengsl milli menningar- og listasögu og
góðrar biblíu- og kristindómsfræðslu. Afleiðingin er sú að dýrmætir
listafjársjóðir eru okkur sem lokuð bók á sama tíma og við tölum um
mikilvægi þess að fólk sé læst á íslenskan og vestrænan menningararf.
Kirkjan og skólinn þurfa því að taka höndum saman og skapa
traustan þekkingargrundvöll sem gerir fólk læst á þennan þátt menn-
ingararfsins. Það skapar forsendur þess að það geti notið trúarlegrar
listar á þann hátt að hún dýpki skilning á stöðu mannsins í tilverunni
á grundvelli íhugunnar um kristin trúarsannindi. List er ekki bara
list. Hún göfgar og þroskar manninn og snertir dýpstu tilfinningar
hans. Trúarleg list er heldur ekki einangrað fyrirbæri. Hún er hluti af
guðsþjónustu og helgihaldi kirkjunnar og stuðlar sem slík að trúar-
legri reynslu og þroska og styrkir samfélag mannsins við Guð. Jafn-
framt felur hún í sér trúarlega tjáningu og játningu og verður sem slík
liður í tilbeiðslu og lofgjörð. Til þess að svo geti orðið þarf sá sem nýtur
listarinnar að vera læs á listaverkið rétt eins og sá sem vill njóta bókar
þarf að kunna að lesa.