Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1998, Page 19

Bjarmi - 01.12.1998, Page 19
 Ragnar Schram Trúarlegt nám í nokkra daga í kgrrlátu umhverfi Popp. kartöíluflögur, súkku- laði, gos og bland í poka. Þessa hluti telja margir þrettán ára unglingar nauð- synlega þegar þeir pakka niður í tösku fyrir fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Sumir taka jafnvel með sér stór, kraftmikil ferðahljómtæki og tugi geislaplatna. Þegar á áfangastað er komið tekur við trúfræðsla sem er liður í undirbúningn- um fyrir ferminguna. Ætlunin er að metta sál og anda af staðgóðri fæðu meðan maginn er útþaninn af ruslfæði í bland við grjónagraut og Cheerios. Árið 1993 hófu Skógarmenn að skipuleggja og halda utan um ferming- . arnámskeið fyrir sóknir Reykjavíkur- og Kjalarnessprófastsdæma. Ári áður höfðu prófastsdæmin þó ráðið til sín umsjónarmenn til að sjá um námskeið sem voru einnig haldin í Vatnaskógi. Nú sjá Skógarmenn um þessi námskeið og fjöldi sókna nýtir sér þjónustuna. Starfsmenn námskeiðanna eru ráðnir af Skógarmönnum en sóknirnar koma einnig með starfsmenn með hópum sin- um. Kostnaður námskeiðsins skiptist á milli unglinganna, sóknanna og pró- fastsdæmanna. Þannig sýnir kirkjan vilja sinn, að styðja við barna- og æsku- lýðsstarf, í verki. Seint verður þó of miklum fjármunum varið í slíkt starf. Að sömu prestamir frá sömu sóknun- um skuli panta námskeið fyrir ferming- arböm sín ár eftir ár segir sína sögu. Al- menn ánægja hefur verið með námskeið- in og prestarnir ánægðir með þennan valkost. Þó námskeiðin í Vatnaskógi séu ekki þau einu sem standa til boða er úr- valið afar lítið. Hægt er að fá Skálholt í þessum tilgangi þó ekki sé farið í sama efni og í Vatnaskógi og möguleikar til úti- vistar færri. Á landsbyggðinni fara sumir prestar með bömin í fermingarbúðir og þurfa þeir þá sjálflr að undirbúa fræðslu- efnið eða fá til þess fólk. Vatnaskógur hefur því sérstöðu hvað þetta varðar. Dagskráin í Vatnaskógi samanstend- ur af beinni fræðslu, ratleik, kvöldvöku, messu ásamt undirbúningi fyrir hana, matmálstímum og frjálsum tíma. Aðalá- herslan er lögð á mikilvægi hvers og eins í kirkju Krists. Yfirskrift nám- skeiðsins, Lifandi steinar, ber vott um þá áherslu. Börnin ræða um vináttuna, sköpunina, kærleikann, krossinn, prestinn sinn og margt fleira. Reynt er að koma miklu efni til skila á líflegan og skemmtilegan hátt.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.