Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1998, Page 23

Bjarmi - 01.12.1998, Page 23
grafa út og myndi hann þá koma aftur til að skera á og hleypa greftrinum út enda var þetta fyrir tíma fúkkalyfjanna. Ég var búinn að liggja fyrir í nokkra daga þegar nokkuð undarlegt gerðist. Mér fór skyndilega að líða mjög illa og ég grét því ég var viss um að ég myndi deyja. Svo heyrði ég að mamma var að koma inn í herbergið og um leið og hún var komin hvarf tilfinningin. Hún spurði mig hvort eitthvað væri að en ég neitaði því. Hún var varla búin að loka hurð- inni á eftir sér þegar svartnættið hvolfdist yfir mig aftur. Skyndilega var eins og rödd segði við mig: „Björgvin, þú deyrð ekki núna ef þú lofar Guði að verða kristniboði eða prédikari.“ Mér varð hverft við en svaraði þessari áleitnu köllun með því að fara á hnén við rúmið mitt og bað upphátt í fyrsta skipti á ævinni. Bænin var að Guð leiddi mig eftir vilja sínum og ég skyldi hlýða. Þessi atburður hafði mikil áhrif á mig og blundaði með mér öll æskuárin. Mér batnaði fljótt eftir að læknirinn hafði stungið á kýlinu. Þegar þarna var komið sögu vissi ég ósköp fátt um Guð og hafði engan skilning á frelsunarverki Jesú Krists. Það kom ekki fyrr en löngu síðar. í millitíðinni var ég mjög leitandi. Ég kynnti mér austræn trúarbrögð og las einnig bækur dr. Helga Pjeturs. Sú lesning ruglaði mig mjög í ríminu. Auk þess var nokkur áhugi fyrir andatrú á heimilinu og hélt móðir mín mikið upp á bók Haraldar Níelssonar, „Árin og ei- lífðin", sem við krakkarnir uppnefndum „Árinn og eilífðin". Á þessum tíma fikt- uðum við systkinin töluvert við anda- glas, en mér leið alltaf óskaplega illa meðan á því stóð. Ég trúði á Guð en það var enn skarð í hjarta mínu sem Kristur átti eftir að fylla síðar. Menntunin Þrettán ára gamall fór ég suður til Hafn- arfjarðar í rafvirkjanám. Enok Helgason rafvirki, frændi minn sem bjó þar, bauð mér samning og það varð úr að ég hleypti heimdraganum og settist á skólabekk í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Meðan á náminu stóð bjó ég hjá Enoki og fjölskyldu. Þegar ég hafði lært til raf- virkja í tvö ár voru settar nýjar reglur um iðnnám sem gerðu rafvirkjadraum minn að engu. Meistarar máttu þá ekki taka nema á samning fyrr en þeir væru orðnir 16 ára og yrði samningurinn gildur frá þeim tíma. Þetta þýddi að ég yrði að gera eins árs hlé á náminu og þar að auki yrði starfsþjáfunin sem ég hafði þá þegar hlotið ekki tekin gild. Þetta varð til þess að ég hætti með öllu í rafvirkjanáminu. Haustið eftir þreytti ég inntökupróf í Kennaraskólann og var tekinn inn með lágmarkseinkunn. Mér líkaði afskaplega vel í Kennara- skólanum og fannst námið eiga vel við mig. Eitt af því fyrsta sem ég gerði eftir komuna til Reykjavíkur var að fara í heimsókn til Þórðar Möller og vorum við mikið saman þau ár sem ég var í höfuðstaðnum. Þórður fór með mig á samkomu í KFUM þegar ég var á öðru ári í Kennaraskólanum. Þar talaði Magnús Runólfsson. Ræðan var mjög lifandi og skemmtileg en ég var fjarri því sammála öllu sem fram kom í henni. Eftir samkomuna kynnti Þórður mig fyrir Magnúsi. Hann spurði mig hvernig mér hafi líkað samkoman. Ég svaraði „Ég er nú ekki samþykkur öllu sem þú sagðir. Ég held að djöfullinn sé ekki til og ég samþykki ekki upprisu Björgvin Jörgensson, stofnandi KFUM á Akureyri.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.