Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 25

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 25
Inga, elsta dóttir okkar sem er búsett á Skagaströnd, en auk Ingu eignuðumst við Böðvar, sem er ári yngri en Inga, hann býr á Akranesi, og Margréti sem er fædd 1949 og er búsett á Akureyri. Þegar við höfðum búið á Akureyri í eitt ár stofnaði ég Barnakór Akureyrar, sjálfstætt starfandi barnakór með sjálf- stæðan fjárhag. Við héldum oft tónleika fyrir bæjarbúa og sungum auk þess á öllum skólaskemmtunum. Fimm árum eftir að ég stofnaði yngri drengja starfið á Akureyri varð það úr að Aðaldeild KFUM var stofnuð. Slík deild hafði að vísu verið sett á laggirnar 15 árum áður af sr. Friðriki Friðrikssyni og Jóhannesi Sigurðssyni prentara en starfið hafði lognast út af eftir að Jó- hannes flutti til Reykjavíkur. Þessi ár voru afar erilssöm. Ég sá um alla Yd.-, Ud.-, og Ad.-fundi hjá KFUM og þá meina ég að ég stjórnaði þeim, lék undir söng, var með skemmtiefnið og hafði oftast hugleiðingarnar. Auk þess æfði ég KFUM-drengina í handbolta. Um miðjan 6. áratuginn var KFUM á Akureyri farið að leita að hentugum stað fyrir sumarbúðir. Vorið 1958 var keypt land á Hólavatni. Slysið Þá um sumarið fékk ég vinnu sem raf- virki við Sementsverksmiðjuna á Akra- nesi sem þá var í byggingu. Ég bjó þá hjá móður minni fyrir sunnan en Bryn- dís varð eftir með börnin á Akureyri. Þegar ég var að fara til vinnu morgun- inn 28. júlí segir móðir mín við mig „Björgvin, ég hef áhyggjur af þessum degi. Farðu varlega." Þetta varð óham- ingjudagurinn minn. Þennan dag gerðist það óhapp í verk- smiðjunni að fata, full af steypu, losnaði af krók þar sem verið var að hífa hana og féll 20 metra niður. Járnhringurinn á fötunni kom í höfuðið á mér og braut höfuðkúpuna svo illa að beinflís, sem var 11 cm löng og 4 cm breið, stakkst inn í heilann. Þegar Bryndís fékk fréttirnar kom hún þegar suður. Læknar hér heima treystu sér ekki til að gera nægilega vel að meiðslum mínum og var ég sendur á spítala til Kaupmannahafnar með flugi. Bryndís kom með mér þangað. Ég komst fyrst til meðvitundar þegar ég vaknaði eftir aðgerðina í Kaupmanna- höfn. Ég hafði óskaplegar kvalir í höfð- inu og bað um eitthvað kvalastillandi. Það einkennilega var að ég vissi að ég þyrfti að biðja um það á dönsku. Hvern- ig ég vissi það veit ég ekki fyrir víst. Fyrst á eftir var ég algerlega lamaður vinstra megin en ekki leið á löngu að ég fór að fá einhvern mátt í handlegginn. Tekist hafði að setja höfuðkúpuna í samt lag utan þess að gat var á henni á einum stað. Gatið átti að fylla upp síðar með plasti. Ég var sendur heim þegar þetta var tekið að gróa. Þórður Möller tók á móti okkur Bryndísi á Reykjavík- urílugvelli. Eftir að hann hafði heilsað okkur sagði hann við mig: „Mikið hef ég þakkað Guði fyrir gatið sem þú fékkst á hausinn, Björgvin." „Hvað ertu að segja?“ sagði ég steinhissa. Þá gerði hann mér grein fyrir að hefði ég ekki fengið gatið á höfuðkúpuna hefði ég dáið á nokkrum sekúndum því blóðið hefði valdið slíkum þrýstingi á heilann hefði það ekki komist út. Ég var lagður inn á Landspítalann þar sem ég fékk mjög góða umönnun og þjálfun. Meðan á þessu stóð komu Bryndís og börnin suður. Aftur á Akureyri Við snerum aftur til Akureyrar haustið 1960 eftir að hafa dvalið í eitt ár í Nor- egi og Danmörku. Ég tók aftur til við að kenna en nú aðeins hálfa stöðu. Ýmislegt hafði gerst í KFUM á Akur- eyri meðan ég var í burtu. Þá hafði vax- ið upp ungur maður sem var í fyrsta KFUM-hópnum mínum og var einn af stofnfélögum Ad., Skúli Svavarsson. Skúli hafði alltaf verið feiminn en líklega hefur Guð þurft að kippa mér burt á þennan hátt svo hann skriði út úr skel- inni. Hann tók forystuna í starfinu og varð ófeiminn við að tala Guðs orð. Skúli varð síðar kristniboði í Eþíópíu og Kenýa, þar sem hann starfar nú þegar þetta viðtal er tekið. Skömmu fyrir jólin 1963 fann Bryndís fyrir einkennilegri kúlu í kviðarholinu sem ég fann líka við þreifingu. Hún leit- aði þó ekki læknis fyrr en á þriðja í jól- um. í fyrstu var talið að hún væri ófrísk en þegar betur var að gáð reyndist hún vera með krabbamein. Hún lést 13. des- ember 1964, réttu ári eftir að hún kenndi sér fyrst meins. Lát hennar olli mér djúpum harmi sem ég bar að mestu í hljóði. Sumarið eftir að Bryndís dó var hægt að byrja starfið á Hólavatni. Ég var sumarbúðarstjóri og gegndi því hlut- verki að minnsta kosti í tíu ár eftir það. Smátt og smátt færðist ég í aukana aft- ur í kristilega starfinu á Akureyri og var virkur í því þar til ég flutti hingað á Skagaströnd fyrir tæpum tveimur árum. Nú er orðið nokkuð síðan ég settist að segja má í helgan stein. Auðvitað sakna ég oft erilsins úr starfinu en allt í lífinu hefur sinn tíma. Ég bið þess og vona að Guð geti notað mig eins og ég er á þeim stað sem ég er. Ég er þakklátur Guði fyrir hvern dag sem hann gefur, sagði Björgvin að lokum. Svo stutt viðtal sem þetta nægir eng- an veginn til að gera fulla grein fyrir því sem á daga Björgvins hefur drifið. Mörg- um merkilegum atburðum er sleppt hér. Ef gera ætti Björgvini Jörgenssyni almennileg skil hefði viðtalið fyllt marga Bjarma. Þegar e'g var aö fara til vinnu morguninn 28. júlí segir móðir mín við mig „Björgvin, ég hefáhyggjur af pessum degi. Farðu varlega." Þetta varð óham- ingjudagurinn minn. Auðvitað sakna ég oft erilsins úr starfinu en allt í lífinu hefur sinn tíma.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.