Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1998, Page 27

Bjarmi - 01.12.1998, Page 27
Ég hef stutt mig mjög mikið við Guð í veikindunum. Ég tala við hann allan daginn. Það er miklu skemmtilegra en tala bara við sjálfan sig. Guð gaf mér líka góða fjölskyldu og hreint frábæra vini sem sýna mér mikla umhyggju og stuðning. Þau hlusta á mig og eru til staðar fyrir mig. Það er sælla að gefa en þiggja. Það er alveg rétt. Ég var öðrum megin við borðið. Núna er ég hinum megin og verð þar um stund. Guð gaf mér líka skynsemi og hana reyni ég að nota til að gera mér lífið bærilegra. Líð- an mín fer mjög mikið eftir því hvernig ég tek á málum. Ég get valið að telja upp allt sem ég missi af og get ekki gert og vorkennt sjálfri mér eða að líta á það sem ég hef og gera gott úr því. Ég hef farið í gegnum flest stig sorgarinnar, áfallið, afneitunina, reiðina, þunglyndið og samninga við Guð: Ef þú gerir þetta, þá skal ég gera eitthvað annað fyrir þig. Það tekur sinn tíma að sættast og reyndar fer ég ekki frekar en aðrir af einu stiginu á annað heldur flögra á milli, held alltaf í vonina um betri heilsu, helst án verkja. Dýrmætt bænalíf Mig langar til að segja frá reynslu minni af því að vera í bænasambandi við Guð, ekki af því að það sé fullkomnara hjá mér en hjá öðrum. í bæn erum við með Guði, tjáum honum allt og hlustum á hann. Því meir sem við biðjum og lifum í bænasamfélagi við Guð lærum við bet- ur að þekkja hann og kærleika hans. Guð verður okkur náinn og við lærum að hlusta á hann og þekkja vilja hans. Ekkert er of lítið fyrir Guð og ekkert er of stórt. Hann hlustar á okkur á allt annan hátt en fólkið í kringum okkur. Hann skilur og ber umhyggju fyrir okk- ur. Hann vill taka þátt í hversdagslífinu, því sem við erum að gera dags daglega og höfum áhyggjur af. Guð þekkir líka allt, þjáninguna, höfnunina, sorgina, niðurlæginguna og einsemdina og þráir að mæta okkur þar sem við erum stödd. Það sem er erfitt að tala um við aðra er auðvelt að tala um við hann. Hann þráir að vera með okkur í sorginni, erfiðleik- unum. Þegar við getum ekki meir nægir . að hrópa á hann og hann tekur okkur í faðm sér og ber okkur. Það er alltaf eitt- hvað sem er erfitt að segja Guði en Til að öðlast náið samband við Guð purfum við að takafrá tíma til að vera með honum á hverjum degi. Þetta getur reynst okkur erfitt og við purfum að biðja Guð um hjáljj til pess. hann þekkir allt og bíður þolinmóður eftir því að fá að komast að til að lækna okkur með sinni græðandi hendi. Bænasamfélag við Guð dýpkar allt, allan skilning og alla skynjun. Það er dýrmætara en gull. í lífinu getum við misst allt, heilsuna, ástvini, starfið og heimilið en við getum alltaf fundið Jesú og átt bænasamband við Guð - föður okkar allra, því hann yfirgefur okkur aldrei. Við þurfum að vera okkur með- vituð um þessa nærveru hans í hugsun- um okkar og athöfnum og verja tíma með honum. Guð þolir vel að heyra reiði okkar, vonbrigði og særindi. Hann gaf okkur þessar tilfinningar ásamt mörg- um öðrum. Hann útskúfar okkur ekki vegna þeirra því að hann elskar okkur og við getum afhent honum tilfinning- arnar ásamt öllu öðru og beðið hann um að taka allt að sér. Þannig vinnur Guð í hjörtunum og öllu okkar lífi. Smátt og smátt breytumst við þó við náum aldrei fullkomnun. Þetta er ævi- langt verkefni sem er erfitt en spenn- andi. Ég hef verið í bænahópi í nokkur ár. Guð hefur gefið okkur kærleika, vin- áttu og bænasvör umfram það sem við höfum kunnað að biðja um. Hann hefur breytt okkur til að geta notað okkur sem verkfæri í hendi sinni. Til að öðlast náið samband við Guð þurfum við að taka frá tíma til að vera með honum á hverjum degi. Þetta getur reynst okkur erfitt og við þurfum að biðja Guð um hjálp til þess. Aðstæður okkar geta verið breytilegar og gert það að verkum að erfitt er að biðja. Vanlíð- án, sorg og veikindi hafa áhrif á bænalíf- ið en hvernig sem okkur líður er það staðreynd að Jesús biður fyrir okkur frammi fyrir hásæti föðurins. Einnig get- um við beðið góða vini um að biðja fyrir okkur þegar okkur reynist það erfitt. Oft þegar okkur líður vel og við erum glöð og hamingjusöm gleymum við að biðja því að við teljum okkur ekki þarfn- ast Guðs eins mikið og áður. Einmitt þá er ástæða til að þakka Guði og gleðjast því að velgengni er ekki sjálfsögð. Það er aldrei stöðnun hjá Guði heldur er alltaf eitthvað nýtt að gerast. Lífið heldur áfram og hann hvetur okkur til að horfa fram á veginn. Ég er eins og lítið sandkorn í flæðar- málinu sem er að reyna að útskýra hið stóra haf. Ég skil ekki nema brot af ráðsályktun Guðs. En ég get sagt frá reynslu minni og tekið undir orð Jobs um Guð: „Áður þekkti ég þig af afspurn en nú hefur auga mitt litið þig.“

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.