Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1998, Page 39

Bjarmi - 01.12.1998, Page 39
barninu í Betlehem verður alveg merk- ingarlaus ef hún er slitin úr samhengi við það hlutverk sem honum var falið sem þar fæddist. „Hann svipti sig öllu, tók á sig þjónsmynd... Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauð- ans á krossi," segir í sálmi Fil- ippíbréfsins. Jólasálmur sr. Valdimars Briem segir sömu hugsun þannig: Hannjjötrum reifajast er uafinn, íJrelsi barna Guðs suo þú sért hajinn. Hann þína tötra tók d sig. að tign Guðs dýrðar skrýði þig. Sjálfur segir Jesús: „Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga“ (Mk. 10:45). Þegar við tökum á móti jólabarninu tökum við ekki bara á móti litlu barni í fjárhúsi heldur honum sem „var í Guðs mynd en fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur." Hinn eigin- gjarni og sjálfselski heldur fast um sitt og gefur ekki eftir feng sinn. Hann horf- ir aðeins á eigin hag. Þannig var sonur Guðs ekki. Hann fórnaði öllu, „tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur". Hann kom inn í okkar aðstæður til þess að leysa okkur úr fjötrum syndar og dauða. Þegar við tökum á móti jólabarn- inu tökum við á móti heilögum syni Guði sem gekk inn í okkar kjör og gerði að sínum svo að við gætum hlotið hans kjör og kallast Guðs börn. Þegar þetta rennur upp fyrir okkur eignumst við raunverulega jóla- gleði sem ekki byggir á ytra glysi og ljósadýrð heldur á þeim veruleika að fá að vera Guðs börn vegna barnsins sem fæddist í Betlehem. „Öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans“ (Jóh. 1:14). Drottinn Síðari hluti sálmsins í Filippíbréfinu fjallar um upphafningu Krists. „Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra.“ Hafi einhver velkst í vafa um það að hann sem fæddist í Betlehem og dó á krossi í Jerúsalem hafi verið Messías og sonur Guðs, þá staðfesti Guð það með upprisu hans. Páll postuli hugleiðir þetta í upphafi Rómverjabréfsins. Hann talar þar um að Guð hafi kallað hann til að boða „fagnaðarerindið um son hans, Jesú Krist, Drottin vorn, sem að holdinu er fæddur af kyni Davíðs, en að anda heilagleikans með krafti áuglýstur að vera sonur Guðs fyrir upprisu frá dauðum“ (Róm 1:2-4). Barnið sem fæddist af Maríu mey, þjónninn sem gaf líf sitt fyrir mennina er með krafti auglýstur að vera sonur Guðs. Við lifum á öld auglýsinga og upplýs- ingatækni og aldrei er auglýsingaflóðið meira en fyrir jólin. En það slær enginn út auglýsingu Guðs þegar hann reisti son sinn upp frá dauðum. Vegna þeirrar kröftuglegu auglýsingar eru jól- in ekki bara falleg minning um bam í jötu heldur fagnaðarhá- tið þar sem við tökum á móti lif- andi frelsara og Drottni. Honum er gefið nafnið sem er hverju nafni æðra. Hvaða nafn er það? Það er nafn Guðs: Drottinn. „Jesús Kristur er Drott- inn.“ „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs" (Lk. 2:11), voru orð engilsins sem kunngjörði hirðunum fæðingu frelsarans. Jesús Kristur er sannarlega Drottinn og frelsari sem hvert kné í víðri veröld þarf að beygja sig fyrir, allt frá vitring- unum frá Austurlöndum, spek- ingum síns tíma sem komu og féllu fram og veittu honum lotning (Mt. 2:11), til okkar sem nú lifum. Þegar við höldum jól, leið- um hugann til Betlehem og tökum á móti honum sem þar fæddist þá erum við ekki bara að dást að iitlu barni í jötu heldur felur það í sér að játa að Jesús Kristur sé Drottinn. Þessi fjögur orð: Jesús Kristur er Drottinn, er líklega elsta trúarjátning kristninn- ar. Að taka á móti honum er að taka undir þessa játningu, viðurkenna hann sem Drottin okkar, afhenda honum völdin í lífi okkar. Sá dagur mun síðan koma þegar allir verða að viðurkenna að Jesús Kristur er Drottinn, hvort sem þeir trúðu á hann eða ekki. Um þann dag segir í jólasálmi sr. Friðriks Friðrikssonar: Ei á jörð íjötu lágri jólabarnið sjáum þá. Við Guðs hægri hönd hann situr, hann þarjáum uér að sjá. Þá skiptir öllu að hafa átt og játað trú á hann sem Drottin og frelsara. „Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drott- inn - og trúir í hjarta þínu að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða“ (Róm. 10:9). Verið með sama hugarfari Páll setur sem inngang að sálminum í Filippíbréfinu orðin: „Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.“ Þegar við tökum á móti Jesú sem frelsara okkar og Drottni erum við jafnframt hvött til að líkja eftir honum, vera með sama hugarfari og hann. Hann var án allrar eigingirni og sjálfselsku. Hann'leitaði ekki síns eigin. Hann hélt ekki dauðahaldi í það sem hans var. Hann var tilbúinn að þjóna og gefa, fórna sjálfum sér fyrir aðra. Við gefum jólagjafir um jólin. En þær geta aldrei orðið annað en örlítið tákn þeirrar miklu gjafar sem Guð gaf og hugarfarsins að baki, kærleika Guðs. En við getum einnig litið á þær sem örlítið tákn þess hvaða hugarfar á að einkenna okkur og áminningu um það að kærleik- ur Krists á að knýja okkur til að þjóna öðrum og elska aðra. „Ég er ljós heims- ins,“ sagði Jesús (Jóh. 8:12). Jólaljósin eiga að minna okkur á hann. En hann sagði einnig: „Þér eruð ljós heimsins" (Mt. 5:14). Þannig geta jólaljósin einnig minnt okkur á það hlutverk okkar að endurvarpa ljósi hans til annarra. Jesús segir: „Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður" (Jóh. 13:15). „Verið með sama hugar- fari...,“ segir Páll. Þetta er jólahvatningin til okkar. Ef við tökum hana alvarlega vegsömum við Guð með lífi okkar og það gerir jólagleðina og jólaboðskapinn á nýja hátt að veruleika í lífi okkar og þeirra sem í kringum okkur eru. Guð gefi okkur gleðileg jól í Jesú nafni.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.