Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2001, Síða 4

Bjarmi - 01.12.2001, Síða 4
Rætt vió Ragnar Gunnarsson, sjónvarpsmann á sjónvarpsstöóinni Ómega MAÐURINN á bak við AN DLÍTIÐ í sjónvarpinu Viótal: Agnes Eiríksdóttir Flestir þeir sem einhvern tíma stilla á sjónvarpsstöóina Ómega kannast við andlit Ragnars Gunnarssonar. Hann sér um þætti sem kallast „Kvöldljós" og eru sýndir í beinni útsendingu á fimmtudags- kvöldum en síðan endursýndir nokkrum sinnum. Þættir Ragnars hafa verið vin- sælir því hann fær mjög breiðan hóp við- mælenda í þáttinn til sín. Yfirleitt eru það viðmælendur hans sem við fáum að kynnast í sjónvarpsþáttunum en ekki hann sjálfur. Okkur lék hugur á að fá að kynnast manninum á bak vió andlitið í sjónvarpinu dálítið nánar. Við fengum Ragnar því til aó setjast hinumegin vió borðið og segja okkur frá lífshlaupi sínu, starfi sínu á Ómega og ýmsu öóru sem hann er aó fást við. Mig lcmgar til að biðja pig að byrja á því að segja okkur dálítið frá sjálfum þér, hver þá ert. — Efvió byrjum á byrjuninni þá fædd- ist ég árió 1 943 og ólst upp í mióbænum í Reykjavík. Það má segja aó tengingin vió kirkjuna hafi strax verið til staðar því afi, sem hét Árni Árnason, var dómkirkju- vörður í 39 ár og ég var ekki gamall þeg- ar ég fór aó labba niður í kirkju til hans. Ég var mikið hjá honum og dómkirkjan hefur ávallt verið dálítið sérstök í huga mínum síóan. Strax á unga aldri fannst mér það eðlilegt að vera trúaður. Ég varó ekki var við að afi væri frelsaður þó að hann talaði um frelsarann, en hann var trúaóur á þennan venjulega hátt, og sem barn elskaði égjesú. Svo er ég líka alinn upp suður í Hafnarfirði, í Guðrúnarsöfn- uðinum, þar var hin afafjölskylda mín. Þegar ég var ekki í dómkirkjunni þávarég þar daglega og þar var trúað fólk. Alla sunnudaga fór ég síðan í KFUM. Síðan koma unglingsárin og þá þurfti maóur náttúrulega að sanna einhverja karl- mennsku og þá fór ég að nota vín. Um þetta leyti fór ég á sjóinn. í einhverju mik- ilmennskukasti afneitaói ég Guði og í einhverju öðru kasti fannst mér ég þurfa aó standa við þá afneitun. Þetta er auð- vitað alveg ótrúlegt en þarna koma ár sem ég hefði kannski einmitt þurft mest á honum að halda eða þegar ég er að veróa fullorðinn. Á sama tíma fer ég að nota vín meira en eðlilegt er. Hvað er eðlilegt? spyr maður kannski. Þaó er ekki svo auóvelt aó svara því en í mínum huga er það þannig að ég hef aldrei þolaó að vera ófrjáls og þá er líka hægt að velta fyrir sér hvaó frelsi er. Ég þoldi ekki þegar vín var farið aó valda mér þaó miklum vandræóum að það réð yfir mér. Sama má segja með reykingar. Ég byrjaði mjög snemma að reykja en ég þoldi ekki þegar reykingarnar voru farnarað hafa vald yfir mér. Þá hætti ég. Þarna líða ein tíu ár sem ég er í afneitun og er „sterkur" og sjálfstæður. Þá ákvað ég að breyta lífi mínu og ég keypti mér AA-bókina. Á þessum tíma var ég reyndar fluttur til Vestmannaeyja. Ég las hana mjög vand- lega í eitt ár og varð fýrir andlegri vakn- ingu. Nú er oróið svo mikið um tólf spora vinnu þannig aó það er engin launung að upphafsmenn AA-hreyfingarinnar voru frelsaðir menn og fýlltir heilögum anda. Samt tala þeir um æðri mátt til að mæta fólki þar sem það er statt. Ég tileinkaði mér þetta algjörlega. Þess vegna ber ég svo mikla virðingu fýrir þessu ferli hjá Ég er líka að fá scmnanir fyrir því aö sumt fólk horfir kannski á þáttinn hjá mér í mörg ár og svo tekur það afstöðu. Ég ber því mjög mikla virðingu fyrir þessu ferli sem hver og einn einstaklingur þarf að fara í gegnum. 4

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.