Bjarmi - 01.12.2001, Side 5
Ragnar Gunnarsson,
sjónvarpsmaóur á Omega og
framkvæmdastjóri í Reykjavík.
fólki. Ég skil að þaó þarftíma til að mæta
Guói. Mér finnst líka eðlilegt þegar fólk
frelsast snögglega en því miður hefur
maður líka rekist á það aó þeir fara á flug
og síðan hrapa þeir. Ég er að horfa á fólk
sem er aó frelsast á mörgum árum. Ég er
líka að fá sannanir fyrir því að sumt fólk
horfir kannski á þáttinn hjá mér í mörg
ár og svo tekur það afstöðu. Ég ber því
mjög mikla virðingu fyrir þessu ferli sem
hver og einn einstaklingur þarf að fara í
gegnum. Ég segi ekki: Þú verður, heldur vil
ég leyfa heilögum anda að vinna verkið.
Þegar maður tekur svona til í lífi sínu
þá breytist svo mikið og mér fannst tilval-
ið að breyta öllu. Ég hafði hætt snemma
í skóla og farið á sjóinn. Ég fór og
kláraði iðnnámió en ég var búinn að
vinna sem pípulagningamaður í 10 ár. í
framhaldi af iðnnáminu fór ég í tækni-
skóla og lauk námi í véliðnfræði þannig
að ég uppfyllti þá þörf, ég var búinn að
mennta mig eins og ég vildi. Síðar bætti
ég reyndar við mig rekstrar-og viðskipta-
fræói í Endurmenntunardeild Háskóla ís-
lands. Ég fór síöan að vinna á teiknistofu
Páls Zophoníassonar við hönnun á hita-
kerfum og var svo ráóinn hingað í Verk-
vang. Ég verð sem sagt trúaður á því að
lesa AA-bókina og ég iórast frammi fýrir
Guði. Þarna er ég bara kominn aftur
heim. Ég er því 35 ára gamall þegar ég fæ
trúna aftur í gegnum tólf spora kerfió. Ég
sagði bara: Ég gef þér líf mitt, mér hefur
mistekist, það er engu að tapa, ég gefst
fullkomlega upp. Svo treysti ég Guði full-
komlega í nokkur ár og ég gerði allt sem
ég átti að gera. Ég sagði satt og sagói
ekki einu sinni skrítlur sem hægt var að
misskilja. Ég fór jafnvel inn í tímabil þar
sem ég var of alvarlegur. Á þessum tíma
fer ég á samkomur í Betel en ég vil samt
meina að ég hafi ekki gert mér grein fyrir
aójesús er frelsarinn. Ég grínast stundum
með það við Snorra og Hjalla í Betel og
segi: Hvers vegna í ósköpunum sögðuð
þið mér ekki frá því að Jesús væri frelsar-
inn? Hvers vegna er ég aó minnast á
þetta? Jú, vegna þess aó þarna var ég
sleginn þessari blindu. Þess vegna ber ég
líka virðingu fyrir henni hjá öðrum. Það
er ekki nóg að vera trúaður. Maður þarf
að átta sig á því að þaó er til frelsari.
Þarna gerði ég mér ekki grein fyrir því. Ég
var bara trúaður í 10-15 ár, fór með Fað-
ir vorið og var góður maður. Það er síðan
fýrir 10 árum að Metta dóttir mín fer i'
Veginn. Ég er í sumarfríi úti í Ameríku
þegar hún hringir í mig og segir: Ég er
frelsuð! Já, já, það er bara ekkert annaó.
Þegar ég var í Betel fýrir 20 árum var það
stórmál að frelsast. Það kom bara fýrir
þá sem voru búnir að vera trúaðir lengi
og svo fór hún á samkomu og frelsaóist!
Ég sagói nú ekki: Amen, því mér var ekki
orðið það tamt þá, en ég sagði: Gott hjá
þér. Hún spurði mig hvort ég vildi ekki
koma með sér á samkomu og ég hélt það
nú. Þar áttaði ég mig síóan á því hver var
frelsarinn. Þarna er hulunni svipt frá
augum mér og ég tek mína trúarafstöðu.
Ég var búinn aó vera svo duglegur í svo
mörg ár að koma mér áfram en það
vantaði samt eitthvað inn í líf mitt. Á
þessum tíma var ég að lesa bók sem heit-
ir: „Sjö venjur þeirra sem ná raunveruleg-
um árangri," eftirStephen R. Coveyog ég
heillaðist algjörlega af henni. Ég les hana
á hverju ári og hún sýnir mér ávallt hlut-
ina í nýju Ijósi. Eitt af þvi' sem Covey
bendir á er aó það sé eðlilegt að þjóna.
Þá ákveð ég að þjóna og segi við Guð: Ef
ég get einhvers staóar þjónað þá er ég til-
búinn að æfa mig í því.
Síóan er ég beðinn um að vera sam-
komuþjónn og þá gerði ég það. Svo var
ég einhvern tíma beóinn um að koma í
viðtal á Ómega og þá gerði ég það og
þegar ég var beóinn að taka að mér sam-
komuvörsluna á samkomunum meó
Benny Hinn þá gerði ég það. Ég gat ekki
beðió Guð um að vinna í lífi mínu ef ég
tók svo ekki við því. Mérfinnst þetta svo-
lítið mikilvægir punktar því ég er búinn
aó fara í gegnum svo margar stöóur í líf-
inu að mér finnst ég eiga auðveldara meó
að skilja fólk fýrir vikið. Þess vegna er
Guð kannski að nota mig á þann hátt
sem hann er að gera.
5