Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.2001, Qupperneq 13

Bjarmi - 01.12.2001, Qupperneq 13
Hrönn var ekki þátttakandi í neinu kristilegu unglingastarfi fýrr en um 16 ára aldur þegar hún fór aó sækja fundi í Kristi- legum skólasamtökum. Nokkru seinna kynntist hún Ragnari sem þá vargenginn í Kristilegt stúdentafélag. Þau komust aó fastri niðurstöðu um framtíóaráformin þegar þau höfðu rætt saman um sameig- inlega köllun sína. Leið Ragnars lá í háskólann og lauk hann BA-prófi í sögu og norsku, svo og sem svarar hálfu BA-prófi í guófræði. Hann aflaði sér einnig réttinda til að kenna. Hrönn lærði hjúkrun. Þau gengu í hjónaband árió 1980 og voru vígð kristni- boðavígslu í Vatnaskógi sumarió 1982 ásamt Valgerði Gísladóttur og Guðlaugi Gunnarssyni bróður Ragnars. I byrjun næsta árs voru þau komin til Kenýu aó loknu eins misseris enskunámi í Englandi. Ungir ráðgjafar Hrönn og Ragnar hafa dvalist þrisvar í Afr- íku eins og fram hefur komið, samtals tíu og hálft ár. Fannst þeim einhver munur á þessum þremur tímabilum ytra? ,Já, munurinn var mikill. Við vorum að sjálfsögðu full tilhlökkunar þegar vió komumst á „endastöðina“ Cheparería, ís- lensku kristniboðsstöðina í Þókothéraði. Við vorum mjög önnum kafin allan tím- ann á þessum fallega stað. Það varyndis- legt fólk sem bjó í nágrenninu. Við áttum tvo litla drengi, Sigurð eins og hálfs árs og Hermann Inga tæplega mánaóar gaml- an.“ Þó að Hrönn hefði fræóst heilmikið um kristniboósakurinn þótti henni nóg um fá- tæktina og óhreinindin sem við henni blöstu. Þetta var svo fjarri því hreinlæti og reglusemi sem hún hafði alist upp við og tamið sér. Börnin léku sér á moldargólfinu í kofunum, fólkið át með berum höndum úr sama fatinu og fatnaðurinn var oft mjög óhreinn. „Eg þurfti að taka mig á til að standa upprétt í þessu nýja umhverfi," segir Hrönn. Þau urðu ekki vörvið neina andúð með- al heimamanna þótt þau væru útlending- ar. Þvert á móti tók fólkið þeim fagnandi og var opinskátt og hreinskilið. „Og því lá ekki þessi ósköp á eins og okkur Vestur- landabúum. Lífsgæðakapphlaupið var ekki byrjað hjá þeim. Þarna var þegar fyrir hópur fólks sem hafði snúið baki við for- tíðinni og fylgdi Jesú. Þaö kom oft til okk- ar að leita ráða í tímanlegum og andleg- Það kom ofh til okkar að leita ráða í tímanlegum og andlegum efnum, enda ekki komnir neinir forystumenn í söfnuðina. Sumar kvennanna urðu heimagangar hjá mér. Þcer voru ekki vanar að taka ákvaróanir um neitt, karlarnir réðu öllu og voru oft harðhentir við þcer. Þcer þurftu leiðbeiningu og uppörvun. um efnum, enda ekki komnir neinir for- ystumenn í söfnuðina. Sumar kvennanna urðu heimagangar hjá mér. Þær voru ekki vanar að taka ákvarðanir um neitt, karl- arnir réðu öllu og voru oft harðhentir við þær. Þær þurftu leiðbeiningu og uppörv- un. En við vorum sjálf ung og reynslulítil og satt að segja urðu andvökunæturnar margar. Oft var komið meó sjúklinga sem voru svo illa haldnir að Ragnar þurfti að aka meó þá á sjúkrahús, jafnvel um miðj- ar nætur. Og drengirnir okkar voru oft veikir á þessum tíma.“ Fólkið, sem orðið var kristið, fann sífellt fýrir freistingum fyrri átrúnaóar, einkum þegar eitthvað bjátaði á og þaó réð ekki við vandann. Stundum virtist óvinurinn Hrönn Sigurðardóttir og Ragnar Gunnarsson kristniboðar. 13

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.