Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2001, Síða 20

Bjarmi - 01.12.2001, Síða 20
Þar sem stærÓfræðin ogjón Vídalín mætast Ragnar Schram Abókasafninu erjames Michael Gar- dner Fell skráóur höfundur enskrar stærófræðibókar í tveimur bindum. Michael Fell er hinsvegar skráður þýó- andi Vídalínspostillu á ensku. I raun eru mennirnir tveir þó einn og sami maóur- inn, oftast kallaóur Michael Fell, þó bókasafnið eigi erfitt meó aó samþykkja aó sami maóur gangi undir tveimur mis- munandi nöfnum. Stærðfræóiþrautirnar sem Michael þessi hefur glímt vió og leyst á löngum ferli eru þess eðlis að færir stærðfræóing- ar klóra sér í höfóinu á meðan aórir láta sér nægja aó hrista þaó. Almenningur bætist svo í hóp þeirra sem eiga vió höf- uð sín þegar hann heyrir aó þessi kanadíski stærófræóiprófessor nýtir ævi- kvöldið vió þýóingar íslenskra fornbók- mennta á ensku. Michael ólst upp ÍVancouverí Kanada til 11 ára aldurs. Faóir hans var enskur og vildi senda son sinn í góðan enskan barnaskóla. Michael fór því ungur að árum austur um Atlantshaf til mennta og dvaldi þar til sextán ára aldurs. Þegar kom að háskólanámi valdi hann háskóla í Vancouver og síóar Berkeley í Kaliforníu hvaóan hann útskrifaöist meó doktors- gráðu í stæröfræói. Síðar varð hann pró- fessor vió Pennsylvaníuháskóla þar sem hann kenndi til 1991 en þá hætti hann, störfum vegna aldurs. Michael og kona hans Daphne eru kristin og sækja því kirkju eins og vera Fljónin Michael og Daphue. ber. Sú hefur þó ekki alltaf verið raunin því á yngri árum fannst Michael kristin trú afar leióinleg en hann ólst upp við kirkjusókn í kanadísku biskupakirkjunni. Ahuga á trúmálum fékk hann svo 23 ára þegar hann las bók um ýmis trúarbrögó. Eftir aó hafa sökkt sér ofaní hindúisma um árabil ákvaó Michael aó snúast til kristinnar trúar en þá var hann 57 ára gamall. Þetta sama ár, 1980, komu þau hjón í sína fýrstu feró til Islands, feró sem átti eftiraó hafa meiri áhrifá líf þeirra en þau gátu gert sér í hugarlund. Michael segist hafa haft áhuga á Is- landi frá unga aldri. Einn kennara hans frá Englandi kom hingað reglulega til að renna fyrir lax og hinn ungi Michael varð forvitinn um þetta fjarlæga land íss og elda. Hann las Islendingasögurnar, skoð- aði kort af Islandi og hugsaói meó sér: „Þetta eru hinir ágætustu staðir sem ég mun líklega aldrei sjá.“ Hann reyndist þó ekki sannspár eins og kunnugt er. Þau hjónin segjast hafa tekió ástfóstri við Island eftir þessa fyrstu feró hingaó. Frá 1982 hafa þau svo feróast til Islands á hverju sumri að einu undanskildu. Fyrstu árin dvöldu þau hér í tvær vikur á hverju sumri. 1991 keyptu þau sér íbúð í Reykjavík og hafa búið hér í nokkra mán- uói á ári síðan. Þar sem Michael var bæöi áhugasamur um Island og kristna trú ákvað hann að leita sér aó verkefni sem sameinaói þessi tvö áhugamál. Þannig hefði hann góóa ástæðu til að koma hingað í nokkra mán- uói á ári og vinna aó verkefninu. Verkefn- ið sem Michael valdi fólst í því að þýða kristin, íslensk ritverk yfir á ensku. Hann byrjaði á úrvali úr Vídalínspostillu vegna þess að hún var frægasta ritverkió auk þess sem Jón er að hans mati besti pré- dikari Islandssögunnar. Fyrst þýddi Michael aðeins nokkra valda kafla úr rit- inu enda bjóst hann ekki vió að fá þaó útgefió — sem reyndar tókst og kom bók- in út árió 1998 í Bandaríkjunum. Næsta verkefni Michaels var kristni- saga Islands. Sjálfur segir hann bókina auólesna og ekki mjög fræðilega. Þar að auki séu sjónarmið í henni sem séu ekki 20

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.