Bjarmi - 01.12.2001, Side 21
)
)
)
j
‘
viðunandi fyrir nútíma fræðimenn. Mich-
ael bætir svo vió að hann sé „ekki stoltur
af henni en hún er fróðleg fýrir fólk sem
ekki þekkir til sögunnar". Sem hlýtur aó
þýða að hún er fróðleg fýrir meginþorra
Bandaríkjamanna og annarra enskumæl-
andi þjóða. Bókin kom út árið 1999.
Þegar ritun kristnisögu Islands var lok-
ið beindi Michael athyglinni að ævi eld-
klerksins Jóns Steingrímssonar. „Þau skrif
voru mjög tímafrek fyrir mig því sjálfsævi-
saga hans fjallar um búskap, veiðar, lög,
iðnað og fleiri atriði í þjóðlífi þess tíma.
Ég þurfti því ráðleggingar með sérstök
orð og lýsingarjóns,“ segir Michael. Ævi-
sagajóns er ekki komin út á ensku en er
væntanleg á næsta ári.
Þessa dagana vinnur Michael að erfið-
asta verkefni sínu hingað til en þaó er
þýðing Píslarsögu Jóns Magnússonar.
„Ég hef lokið fýrsta uppkasti þýðingar-
innar og afhent það ýmsum fræðimönn-
um til yfirlestrar." Michael segist vilja
leggja áherslu á trúarreynslu Jóns í bók-
inni. „Hann var með þráhyggju um
galdramenn en var þó mjög trúaður
maður. Ég tel að trúarlífið hafi skipt
hann meiru en nokkuð annað í lífinu. Án
trúarinnar hefði hann orðið brjálaður
sem hann varð ekki. Hann var e.t.v. sjúk-
ur en ekki brjálaður. Sigurður Nordal seg-
ir að trúarlíf Jóns hafi komið í veg fýrir
brjálæði hans og er ég honum sammála."
Augljóst er að Michael hefur kynnt sér
ævi Jóns mjög vel og meðal annars lesió
álit ýmissa lækna og annarra fræóimanna
á veikindum Jóns. Þá hefur hann lesið
annað efni frá 17. öld til að komast inní
hugsunarhátt þeirrar aldar. Michael seg-
ir píslarsögu Jóns einstaka í evrópskum
bókmenntum því enginn annar galdra-
mannaofsóknari frá þessum tíma hafi
lýst hugsunum sínum á prenti eins ogjón
gerir.
En skyldi Michael hafa hugleitt að
byrja á nýju verkefni? ,Já, já, e.t.v. verður
Hallgrímur Pétursson næstur,“ segir
hann og brosir. Ef hann þýðir Passíu-
sálmana segir hann þá verða á óbundnu
máli. „Ég hefði mjög gaman af því aó
þýða Passíusálmana," segir Michael og
lítur til konu sinnar sem situr og sinnir
hannyrðum en gætir þess þó að ávallt sé
nóg te í bolla gestsins og minnir hann
stöðugt á Ijúffengt meðlætið.
Eins og fram kom í upphafi hefur
Michael Fell skrifaó tveggja binda bók
um stærðfræði. Bókin sú er þó engin
kennslubók fýrir byrjendur heldur m.a.
fýrir þá sem stunda doktorsnám í grein-
inni. Michael segir bókina ekki hafa selst
vel af þeim sökum og bætir við: „Svona
bók gerir höfundinn ekki auöugan.“ Það
sama á eflaust vió um fleiri bækur sem
hann hefur unnið að enda er það áhug-
inn sem knýr hann áfram í verkefnavali en
ekki vonin um skjótfenginn gróða.
Þegar hér er komið sögu í spjalli okkar
er vetrarsólin farin aó halla sér við sjón-
deildarhringinn og ekki hægt að yfirgefa
hýbýli þeirra hjóna án þess að fá aó heyra
hvernig kynni þeirra bar að. Þá sögu
segja þau mér í sameiningu og augljóst
að þau muna vel eftir fýrstu kynnum.
Michael segir mömmu sína hafa leitað
lengi að kvonfangi handa syninum en án
árangurs. Michael hafði einfaldlega öðr-
um hnöppum að hneppa og var lítt með
hugann vió kvenþjóðina. Daphne sem er
ensk hafði flutt vestur um haf og var um
hríð í Vancouver hjá vinkonu móóur
Michaels. Þegar Michael var á ferð í
Vancouver bar fundum þeirra saman og
þótt brúðkaupió hafi ekki verið ákveðið
samdægurs leió ekki á löngu þar til amor
hafði skotið örvum sínum í hjónaleysin.
Þau giftu sig svo árið 1957.
Árlega dvelja þau í um 5 mánuði á ís-
landi og ferðast mikið um landið. Þau
hafa líklega séð meira af íslandi en stór
hluti þjóðarinnar enda eru ferðalög mik-
ið áhugamál þeirra hjóna. Þau segjast þó
eiga eftir að heimsækja Öskju, Surtshelli,
Herðubreið og hluta hálendisins.
Til að rækta samfélagið við trúbræður
og —systur fara Michael og Daphne í
Grensáskirkju og Hallgrímskirkju. Mich-
ael segist ekki hafa kynni af starfi KFUM
en vonast til að fá tækifæri til þess. Hann
segist ánægður með Þjóðkirkjuna og tel-
ur hana í góðum höndum Karls Sigur-
björnssonar. Á þessum nótum lýkursam-
tali okkar og við virðum fýrir okkur glæsi-
legt útsýni úr íbúð þeirra hjóna áður en
við kveðjumst. Michael og Dapnee koma
ekki aftur fýrr en í vor enda eru þau á leió
til heimilis síns í Bandaríkjunum þar sem
þau ætla að njóta þakkargjörðarhátíðar-
innar með fjölskyldunni. Og þegar ég
kveð þau velti ég því fýrir mér hvaða písl-
arsögu Michael muni lesa í flugvélinni.
21