Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2001, Blaðsíða 30

Bjarmi - 01.12.2001, Blaðsíða 30
Um lestur Biblíunnar * legra rannsókna og afneitun á hefðinni þrengi ekki einungis sjónarhorn rannsak- andans heldur skekki sýnina á sannleik- ann. Allur skilningur byggir á reynslu og mati sem manninum er miólað. Maður- inn styðst þannig við for-dóma íjákvæð- um skilningi. Gadamer bendir á aó for- dómar í þessari merkingu þurfi alls ekki að vera rangir. Þeir og hefðirnar sem miðla þeim hafi þurft að sanna sig í gegnum tíðina sem haldbærar og not- hæfar skýringar.l10! Fordómar hafa í þessu samhengi ekk- ert að gera með sleggjudóma og hindur- vitni. Þeir eru forsendur sem menn styðj- ast við í átökum hins daglega lífs og hafa reynst þar vel. Af þessu leiðir að þaó verður að taka tillit til hefðarinnar og túlkunarsögunnar þegar fortíðin er rann- sökuð. Skilningur þýóir þar með að rann- sakandinn gengur svo aó segja inn í túlk- unarsöguna.l11] Þessi áhersla Gadamers hefur haft geysileg áhrif á ritskýringu ritningarinnar. Túlkunarsagan hefur þar æ meira vægi og komið hefur í Ijós að sterkan samhljóm er aó finna milli útleggingar hefóarinnar og niðurstaðna í nútíma ritskýringu.l12] Söguleg gangrýni hefur leitt til þess aó innan ritskýringarinnar hefur meginá- herslan legið á því aó fá sem skýrastu mynd af upprunalegasta texta ritningar- innar. Menn hafa reynt aó finna elstu gerð hans og gert grein fyrir þeim hefðum sem búa aó baki honum. Þessi leit að texta og textabrotum handan ritningar- textans sjálfs hefur leitt til slíks tilgátu- og kenningafrumskógar að menn finna þar fáa stíga, villast og komast ekki út úr honum. I staðinn fýrir að einskorða rit- skýringuna við afstæða leit að því sem á að vera upprunalegast og elst vill „kanonsík" eða biblíuleg ritskýring viróa endanlega útgáfu texta ritningarinnar. Mælikvarðinn sem útleggingin á að miða vió ertextinn eins og hann birtist lesanda ritningarinnar. Einn helsti frumkvöóull þessarar stefnu er bandaríski gamlatestamentisfræðing- urinn Brevard S. Childs. Hann bendir á þá gömlu staðreynd að ritningin sjálf er endanlegur útgangspunktur hennar. Guðfræðilegt inntak og tilurð ritasafns ritningarinnar (kanonsins) fær hér mið- lægt gildi. Að rit tilheyrir Biblíunni segir mikið um það en einnig staða þess innan ritningarinnar. Vissulega var til fjöldí rita sem ekki komust í Biblíuna og margar stefnur voru mótandi bæði innan fsraels og frumsafnaóarins, en rödd þeirra á sér ekki fulltrúa í henni. Astæða þess er ekki miðstýró ákvarðanataka heldur sú stað- reynd að þau samræmdust ekki þeirri megin-guófræðihugsun sem rit ritningar- innar vitna um. Tilurð Biblíunnar er hér sett aó jöfnu vió verk heilags anda og op- inberun Guðs í sögu ísarels og í Jesú Kristi. Hún inniheldur bæði orð Guós og rétta túlkunarsögu þess. I rannsóknum sínum kemst B. S. Childs að þeirri niður- stöóu að tiluró ritningarinnar byggi ekki alfarið á utanaðkomandi ákvörðunar- töku, svo sem á biskupafundum eða kirkjuþingum.I13] Það voru mun fremur ritin sjálf og inni- hald þeirra sem drógu þau hvort að öðru, tengdi þau saman og gerðu að einu ritasafni. Childs sýnir fram á að þeir mismunandi aðilarsem söfnuðu upphaf- lega efninu túlkuðu það og settu saman í eitt rit og síðan hvert rit fýrir sig, þeir og starf þeirra er hluti af ferli útleggingar- innar á orði Guós. Því lauk með tilkomu ritasafns ritningarinnar. Nauósynlegt er skilgreina og rekja þessa þróun og um fram allt útkomu hennar. Afgerandi er hér annars vegar að halda öllu innan kanonsins sem er þar, þ.e.a.s. það ber að virða tilurð ritanna, og hins vegar aó bæta engu við ritin, þ.e.a.s. að halda í heiðri ritningunni sem heild.l14! Kostur- inn vió kenningu Childs er að texti ritn- ingarinnar er lagður til grundvallar rit- skýringunni um leið og tekið er tillit til sögulegrar tilurðar hans. Sérstaða ritningarinnar sem vitnis- buróur um orð Guðs og rétta túlkun trú- arinnar á því fær ekki nægilegt rými innan hinnar sögulegu gagnrýni. Ritningin er trúarrit tvennra trúarbragða, gyðing- dóms og kristni. Tilurð og veruleika hennar er ekki hægt að rífa úr því sam- hengi. I stað þess að beina stefnum og straumum hverjum gegn öðrum innan ritningarinnar í ósættanlegar stærðir reynir biblíuleg túlkunarfræði að virða rit ritningarinnar sem heild og boðun henn- ar. Hún bindur sig því ekki bara við af- markaða og sértæka texta heldur beinir sjónum sínum að stærri textablokkum og heilu ritunum. Hún greinir og byggingu og samband ritasamstæðanna innbyrðis en þá í Ijósi kenningar siðbótarmann- anna og fornkirkjunnar um að heilög ritning útleggi sig best sjálf (sctcra scriptura sui ipsius interpresj.(15] í þessu samhengi leitar biblíuleg guðfræði eftir samtali milli ritskýringarinnar og samtíðarinnar. En það er einungis mögulegt í nánum tengslum við trúfræðina og kennimann- lega guðfræði. Predikunin fær hér mið- læga merkingu fyrir ritskýringuna og kemur í veg fýrir að hún verði stunduð í tómarúmi. Ahrif gamlatestamenntisfræðingsins Gerhards von Rad og trúfræðingsins Karls Barth á nokkra helstu fulltrúa biblíulegrar guófræði eru greinileg. Hjá þeim er í fýrirrúmi áherslan á að ritningin

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.