Heima er bezt - 01.07.1956, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.07.1956, Blaðsíða 18
HÁKON GUÐMUNDSSON, hœztaréttarritari: BlaZah í DÓMSMÁLUM Eitt sinn þegar ég var á leið heim til mín í hálku um úthverfi Reykjavíkur, veitti ég því athygli að nokkrir verkamenn, sem bjuggust til heimferðar að lokinni vinnu, voru að koma sér fyrir í farþegaskýli á palli vörubifreiðar. Mér datt þá í hug atvik, sem gerðist í desembermánuði 1950 við svipaðar aðstæður, og úr varð hæstaréttarmál. Sú saga var á þessa leið. Atvinnurekandi einn í Reykjavík, sem hafði margt fólk í vinnu í starfstöð sinni, lét að jafnaði bifreið sína flytja starfsfólkið til vinnustaðarins. Til flutninga þess- ara notaði hann vörubifreið með pallskýli, og gekk fólkið eftir tröppu upp á pallinn, en trappan, sem var laus, var þá reist upp við afturenda bifreiðarinnar. Hinn 12. desember 1950 flutti bifreiðin að vanda nokkra starfsmenn frystihússins til vinnu, og komu þeir í bif- reiðina á Bræðraborgarstíg. Snjór var nokkur á jörðu í þetta sinn og skreipt í spori. Hafði trappan verið reist við afturenda bifreiðarinnar, eins og vant var. En svo háttaði til, í þetta sinn a. m. k., að neðstu rimina vant- aði á tröppuna. Þá voru hvorki krókar á henni að ofan til stuðnings, né heldur broddar í kjálkum hennar að neðanverðu, til varnar því, að hún rynni til. Nú bar það við, að þegar ein starfsstúlkan steig upp í neðstu rimina, þá rann trappan til. Skrapp hægri fótur stúlk- unnar milli rimlanna og lenti harkalega á frosinni jörð- inni. Stúlkan tók bakfall og var nærri dottin, en það varð henni til bjargar, að handsterkur samstarfsmaður, sem enn var utan bifreiðarinnar, greip til hennar og varnaði falli. Stúlkan fékk þegar í stað þrautir í fót- inn, og við rannsókn kom í ljós, að hún hafði hælbeins- brotnað. Stúlkan hélt því nú fram, að atvinnurekandinn bæri ábyrgð á slysi þessu, þar sem það hefði hlotizt af ófull- nægjandi útbúnaði á þeirri bifreið hans, sem flutti fólkið. Gerði hún kröfu til 80 þús. króna bóta. Atvinnurekandinn krafðizt hins vegar sýknu af bóta- kröfu stúlkunnar. Hélt hann því fram, að síysið væri hvorki að kenna ófullnægjandi umbúnaði á tækjum hans, þ. e. bifreiðinni, né heldur hefði því valdið van- gæzla starfsmanna hans. Var sannað í málinu, að verk- stjóri atvinnurekandans hafði oft og einatt áminnt starfsfólkið um það, að fara varlega, er það gengi upp tröppuna. Kvað vinnuveitandinn að hér væri.aðeins um hreina óhappatilviljun að ræða, og yrði því stúlkan sjálf að bera allan skaðann. Þau urðu úrslit máls þessa, bæði í héraði og Hæsta- rétti, að talið var, að stiga þeim, er fólkið gekk eftir upp á bifreiðina hefði verið áfátt, þar sem bæði vant- aði í hann neðstu rimina og honum var auk þess hvorki krækt að ofan í bifreiðina né nokkur viðspyrna í neðri enda hans. Þá var og enginn annar viðbúnaður hafður á stiganum til stuðnings, þótt hann væri, er slysið varð, reistur á hálli jörð. Var aðstaða þessi og útbúnaður til uppgöngu á bifreiðina að áliti dómstólanna alveg óhæfi- legur. Þar sem ekki hafði þannig verið gætt þess ör- yggis, sem kostur var á, var dæmt, að atvinnurekand- inn væri bótaskyldur vegna slyssins, sem ekki yrði að neinu rakið til óvarkárni af hálfu stúlku þeirrar, sem fyrir því varð. Stúlkan var 46 ára að aldri, er hún brotnaði. Trygg- ingarlæknirinn mat örorku hennar 100% fyrstu þrjá mánuði eftir slysið, en varanlega örorku taldi hann verða 18% af hundraði. Með hliðsjón af þessari örorku og öðrum þeim atriðum, sem taka bar tillit til, þótti tjón stúlkunnar vegna örkumla hennar hæfilega metið kr. 42.000.00. Þá voru henni og dæmdar kr. 6500.00 í bætur fvrir þjáningu og kr. 430.00 til greiðslu á hrein- um sjúkrakostnaði. Var atvinnurekandanum samkvæmt þessu dæmt að greiða samtals kr. 48.930.00 og kr. 8000.00 í málskostnað fyrir báðum dómum. Margt skeður á sæ, segir máltældð, og er það orð að sönnu, enda eiga mörg dómsmál rætur sínar að rekja til atvika á sjó; er og hér fyrir hendi eitt þeirra mála. Samkvæmt dagbók vélbátsins Sæfinns frá Akureyri fór hann í róður frá Grindavík kl. 6 að morgni hinn 20. marz 1953. En þegar verið var að leggja netin suð- ur af Reykjanesi tveim kl. stundum síðar fór eitt netið í skrúfu bátsins. Skrúfan var þá tekin úr sambandi og netið skorið frá, en þegar skrúfan var sett í samband aftur, sat það mikið eftir af netinu, að hún vann ekki betur en svo, að hún rétt þokaði skipinu áfram. Þar sem vindur var 4—5 stig af suðvestri og töluverður sjór, þótti skipstjóra Sæfinns rétt að leita aðstoðar, og náði hann sambandi við vélbátinn Hauk frá Ólafsfirði, sem var að veiðum á nálægum slóðum. Haukur fór þegar af stað, Sæfinni til hjálpar, og kom til hans kl. rúmlega 10. Báðu sldpverjar á Sæfinni Haukverja um drátt norður fyrir Reykjanes. Sæfinnsmenn komu nú dráttar- taug yfir í Hauk, og var Sæfinnur því næst dreginn norður fyrir nesið. Þegar bátarnir komu út af Stóru 246 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.