Heima er bezt - 01.07.1956, Blaðsíða 51
46) Allt gengur slysalaust. En að lokum
reynir o£ mikið á fangalínurnar, og önn-
ur þeirra slitnar skyndilega. Og rétt á
eftir slitnar hin líka. Síðasti maðurinn
á flakinu, sjálfur skipstjórinn er nú á
leiðinni yfir til okkar, en rekur nú á
brott undan sjónunum.
47) Ég verð þess brátt var, að snekkj-
una okkar rekur í sömu áttina og skip-
stjórann og hliðhallt við hann, og mér
dettur skyndilega ráð í hug. An þess að
segja nokkuð bind ég línu utan um mig,
hleyp upp á þiljur og steypi mér út-
byrðis.
48) Ég syndi og syndi, eins og ætti ég
lífið að leysa. Og nú verður að telja
í sekúndum, því hér getur allra minnsta
töf valdið þvi, að öllu sé lokið. Skip-
stjórinn hefir orðið mín var og syndir nú
allt hvað af tekur. Loks næ ég í aðra
frakkaermina hans.
49) Ég held nú fast af öllu afli, og nú
aðstoðar skipstjórinn mig einnig. Hann
tekur fast um báðar hendur mínar. Og
bátsverjar hrópa hástöfum húrra, er þeir
draga okkur að bátnum.
50) Ógurlegt brothljóð berst að eyrum
okkar, og okkur verður litið til skips-
flaksins. Sjáum við nú, að sjóarnir kljúfa
skipið sundur á skerinu, og síðan sekkur
það hægt niður í golgrænan sjóinn.
51) Nú er haldið heimleiðis á sökkhlað-
inni snekkjunni. Við lensum í hraðbyri.
Og nú er meiri hætta á ferðum og erfið-
ara að verjast áfölum sjóanna, sem æða
á eftir okkur.
52) Loks náum við þó landi heilir á
húfi. Ég fæ að þurrka fötin mín í fiski-
mannakofa niður við sjóinn. Og er ég
loks fer að búast til ferðar, biður skip-
stjórinn mig að staldra ofurlítið og tala
við sig.
53) Hann réttir mér nú meðmælabréf,
og í því biður hann alla sem séu sér
kunnugir að reynast mér vel og aðstoða
mig, ef ég skyldi leita mér að einhverri
vinnu. Auk þess gefur hann mér 500
krónur í launa skyni fyrir björgunina.
54) Þegar ég hefi lokið erindi mínu í
Lúðinni, held ég heimleiðis í glöðu
skapi. Mér virðist ég reglulega hamingju-
samur. Ekki aðeins sökum þess að ég
hefi unnið gagnsverk, heldur einnig
vegna þess að ég hefi eignast annan eins
vin og skipstjórann af skipinu sem fórst.