Heima er bezt - 01.07.1956, Page 33

Heima er bezt - 01.07.1956, Page 33
Nr. 7-8 ‘ Heima ---er hezt 261 Suður gaf. Norður og Suður voru á hættu. Spilin skiptust þannig: Norður: Spaði: K, G, 6, 4, 2 Hjarta: K, 7, 5, 3 Tigull: Á, G Lauf: K, 3 Vestur: Spaði: 9, 7 Hjarta: 10, 4 Tigull: 10, 9, 6, 5 Lauf: G, 10, 9, 6, 4 Austur: Spaði: Á, 8, 5 Hjarta: D, G, 9, Tigull: K, 8, 7 Lauf: Á, D Suður: Spaði: D, 10, 3 Hjarta: Á, 2 Tigull: D, 4, 3, 2 Lauf: 8, 7, 5, 2 8, 6 Sögnunum lauk með því, að Mc Tavish í suðri sagði þrjú grönd. Er það klaufaleg sögn og á auðvitað alls ekki að vinnast. Senor Ferganza sló út laufagosa. Frúin tók með drottningunni og spilaði ásnum. Nú hugsaði hún sig lengi um og sló loks út tigulkóngi. Spilið var þá auðvitað auðunnið. Senor Ferganza virtist furðu rólegur, er hann ávarp- aði frúna: „Má ég vera svo djarfur að spyrja, hvernig í ósköp- unum þér datt í hug að slá út tigulkónginum? “ „Viltu gjöra svo vel að tala ekki til mín í þessum uppgerðar-hæðnistón, rottan þín!“ sagði frúin ískalt og fyrirlitlega. „Þekkirðu ekld einu sinni Deschapelles- bragðið, þegar það liggur svona ljóst fyrir? Síðast í gærkvöldi las ég um það í Gylltu bókinni eftir Culbert- son. Þetta var eina hugsanlega ráðið til að hnekkja sögninni. Ef þú hefðir átt tiguldrottninguna, var þér búin innkoma á hana með því að spila kónginum fyrst. En auðvitað áttirðu ekki drottningu. Þá færð aldrei neitt, sem gagn er að, ræfillinn þinn!“ Nú spratt Ferganza upp fokvondur: „Hvaða bölvað tiguldrottningar bull er þetta. Reyndu nú að taka eftir því, sem ég segi. Þetta er svo einfalt, að vera má, að hægt sé að láta þig skilja það. Hver veit? Ef þú hefðir slegið einhverju öðru út en tiguldrottningunni, var spilið tapað hjá þeim. Einhverju öðru! En þú valdir einu vinningsleiðina þeirra. Þú! Þú—! Mig iðrar sárlega dagsins, sem ég var það flón að giftast þér og skuld- binda mig til að ala önn fyrir þér og sníkjudýrinu henni móður þinni!“ „Blandaðu ekki henni móður minni inn í þetta svínið þitt! “ æpti frúin. „Ég sá til þín í rnorgun, karlinn, þeg- ar þú varst að gera gælur við blökkustúlkuna. Láttu þér ekki detta í hug, að ég viti ekki, hvað fram fer í kringum mig.“ Senor Ferganza brosti glaðlega. „Jæja, svo að þú veizt það,“ sagði hann. „Nú, hún er bæði yngri og laglegri en þú, og ég skal veðja um, að hún spilar líka betur bridge.“ Hann sneri sér við og kveikti í vind- lingi. Frúin horfði tryllingslega í kringum sig. Þungur kertastjaki úr kopar stóð á litlu hliðarborði. Hún greip hann — og.... Líkskoðunin leiddi í ljós, að höfuðkúpan var brotin á tveimur stöðum. Læknirinn lét þess getið, að slíkt væri mjög óvenjulegt undan einu höggi með oddlausu barefli. Taldi hann, að höggið hlyti að hafa verið greitt af óvenju afli og þó hnitmiðað eins og hjá æfðum knattdrepumanni. I réttarsalnum báru kaupinennirnir það, er hér er sagt, en reyndu að finna frúnni ýmsar málsbætur. Kviðdóm- urinn sat aðeins fimm mínútur á ráðstefnu. Urskurð- urinn var: Sek um manndráp, en ekki af yfirlögðu ráði. Dómarinn dæmdi senoru Ferganza í tólf krónu sekt og bauð henni strangan vara á urn að gera þetta aldrei aftur. Enn fremur hélt hann yfir henni dynjandi skammaræðu fyrir að hafa slegið út tigulkóngnum. Kvaðst hann aldrei á sinni lífsfæddri ævi hafa heyrt getið um svo fráleitt útspil. Að lokum setti hann frúnni eitt skýlaust skilyrði, er varðaði þungum vítum að rjúfa: Hún mátti aldrei spila bridge í löndum Portu- gala í Vestur-Afríku — og reyndar helzt hvergi. -----o----- Rómönsku löndin hafa löngum verið vel hlutgeng í ástríðuglæpum, og liðtæk hafa þau reynzt í þeim við bridgeborðið. Ber þó Frakkland þar stærstan hlut frá borði miðað við fólksfjölda, og la belle France getur hrósað sér af eina tvöfalda morðinu, sem drýgt hefir verið við bridge fram að þessu. Gerðust þau samtímis út af deilum um sama spilið á tveimur borðum, sitt í hvoru herbergi. Þetta sögulega spil er einkennilegt og býsna vand- meðfarið. Kom það fyrir í fjögra manna keppni árið 1937 — á lítt kunnum stað í Suður-Frakklandi, er Aix- les-Bains nefnist. Er þar árlega háð undirbúningskeppni fyrir landsmótið í París, og þykir mörgum staðurinn undarlega valinn og tilkomulítill fyrir svo virðulega samkomu. Ekki þykir þó heiglum hent að sækja þang- að, og ekki eru aðrir taldir hlutgengir þar en úrvals spilamenn. Þykir allmikill frami að komast þar í sveit og er mjög eftirsótt. (Framhald.)

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.