Heima er bezt - 01.07.1956, Síða 40

Heima er bezt - 01.07.1956, Síða 40
268 Heima Nr. 7-8 --------------------------------er bezt---------------------------- fyllri sem vænta má, þar sem hún er skráð næstum sam- tímis viðburðunum af heimamanni. Helztu atriðin, er máli skipta úr frásögn Jóns, eru þessi: 1) Þegar mokað var ofan í gröf Bjarna Gíslasonar varð eftir mold og eitthvað af beinum. 2) Hann lýsir umbúnaði iíkanna í kistunni svo, að dúnkoddi hafi ver- ið iagður undir höfuð líks þess, sem virtist vera af karl- manni allstórum og um það sveipað áklæði eða ábreiðu: Afskiptum Benedikts lýsir Jón svo: Benedikt hafði ekki verið heima, þegar þeir atburðir gerðust, sem hér hefur verið skýrt frá, en kom heim um nýjársleytið eða skömmu eftir áramótin. Var honum þegar sagt frá reimleikanum og beðinn að leggja gott til, svo að úr bættist. Svaraði Benedikt fáu, en lét þegar daginn eftir aðgæta leiði Bjarna heitins; kom þá í Ijós, að eitthvað af mannabeinum hafði orðið eftir í moldinni umhverfis leiðið. Voru þau nú öll tínd vandlega saman, og gerði Benedikt holu ofan í leiðið og byrgði vandlega yfir. Eitt kvöld skömmu síðar gekk Benedikt einsamall fram og var alllengi úti. Fór mönnum að lengja eftir honum og var farið að grennslast um hann. Þegar út var komið, var Benedikt að koma út um kirkjugarðinum, en ekkert gat hann um, hverra erinda hann hafði þang- að farið. Við þetta bætti Jón, að hann hefði átt tal um þetta við Benedikt. Staðfesti hann það, sem hér hefur verið sagt um mannabeinin og bætti því við, að gamall maður (þ. e. hann sjálfur) hefði lesið gott guðsorð og beðið bæn á leiðinu, og hefði við það tekið fyrir reimleikana. Fólk í Óafsfirði og víðar trúði því að Benedikt hafi kveðið drauginn á Kvíabekk niður með mergjuðum vís- um, eða þá með guðsorðalestri og bænagjörð á leiðinu, og gengu um þetta ýmsar sögur. Ein sagan segir að hann hafi kveðið drauginn niður með þessari meinlausu vísu: Þú, sem hræðir börnin blíð, brúka ei slíka siði. Vertu kyrr’, hjá látnum lýð láttu hina í friði. í febrúar 1920, rúmlega tveimur mánuðum eftir þessa atburði, hitti ég Benedikt og spurði hann meðal annars um reimleikana á Kvíabekk og þátt hans til að afstýra þeim. Hann viðurkenndi, að hann hefði lesið guðsorð og beðið bæn á leiðinu. „En því trúi ég varla, að mín fátæklegu orð hafi megnað að stöðva þau öfl, sem þar voru að verki, þó svo undarlega virtist bregða við,“ sagði Benedikt að lokum. Ég hef nú dregið hér fram það helzta, sem ég man um Benedikt. Hér verður því numið staðar og hætt frá- söcrnum af Benedikt barnakennara. O Minning hans lengi lifi. Guðlaugur Sigurðsson. Sögulegur fjallvegur Framhald af bls. 245. ---------------------------- gista í Stykkishólmi, því að veðurútlit var þannig, að vel gat snjóað um nóttina, og þá gat leiðin yfir fjallið orðið ófær. Er mér það í minni að Jón kemur heim til mín í Stykkishólmi um kl. 8 um kvöldið og vill lítið stanza. Segist hann verða að hafa hraðann á suður yfir, því að fjallið geti lokazt, ef snjókoma yxði um nóttina. Hann tefur því lítið og ekur af stað suður. Frá Stykkishólmi upp undir skarðsbrúnina eru um 20 km. og var það þá sæmilegur bílvegur. En þar sem leiðin lá upp í skarðið, var gilfarvegur gamall, sem Fura (Þverá?) nefnist, en þar fyrir ofan taka við bratt- ar sneiðar inn á brúnina. Ér efri sneiðin mjög brött og var þá grýtt og erfið bílum. ----Jón ekur nú eins og leið liggur um Þórsnesið og upp Helgafellssveitina um Skeið og Stórholt. Hann ekur fremur hratt, eða eins hratt og vegurinn leyfði. Gerist nú ekkert sögulegt fyrr en hann kemur að Furu. Gilfarvegurinn var grýttur mjög, en mjór, ruddur veg- ur yfir hann. Jón ekur enn allhratt, og þá er hann kemur að Furu og er að hægja á sér, lítur hann allt í einu mann í götunni rétt fyrir framan bílinn og finnst sem hann aki á hann. Með snöggu átaki reynir Jón að forða slysi og stýrir bílnum út í urðina. Hann drepur um leið á bílnum og stekkur út. Býst hann við að sjá manninn liggja slasaðan í götunni, en þar var þá enginn maður. Brá Jóni nú mjög og greip hann hræðsla. Niðamyrkur var á og enginn bær nærri. Snarast Jón nú aftur inn í bílinn og tekst að „bakka“ honum aftur inn á götuna. Hann kveikir síðan ljósin og ekur hratt af stað. Lítið ljós var í mæliborðinu og því sæmilega bjart í stýrishúsinu, en aðeins dauf skíma aftur í bílnum. Jón ekur nú eins og leið liggur upp í sneiðarnar og uggir ekki að sér, en með hrollkenndum kvíða hugsar hann til efri sneiðarinnar og dysjanna. Hann hafði ekki náð sér að fullu eftir „ákeyrslunaa. Verður honum nú litið til hliðar og sér þá mann sitjandi í framsætinu, í dökkum fötum með hvítt um hálsinn. Ekki virtist maðurinn veita Jóni neina athygli. Greip nú Jón ofsahræðsla, og getur hann ekki gert sér þess neina grein, hvernig honum gekk upp sneiðina. Þegar upp kom í skarðið, situr maðurinn enn í sætinu. Verður Jóni þá litið aftur í bílinn og sýnist þar hvert sæti skipað, — og glórði óglöggt í andlit farþeganna í daufri skímunni. Allir sátu hljóðir og hreyfingar- lausir að öðru en því, að höfuð farþeganna rugguðu eftir hreyfingum bílsins, og voru þeir æði hálsliða- mjúkir. Við þetta allt brá Jóni svo, að hann missti næstum stjórn á sér. Fram undan lágu greiðfærir melar og ekur hann nú

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.