Heima er bezt - 01.01.1958, Page 9

Heima er bezt - 01.01.1958, Page 9
VILLAN I KJALHRAUNI 1916 eftir Ingvar Pálsson, Balaskar&i f að einhver ykkar hefur farið í göngur fram til i jöklanna, þar sem venjulega er verið 5—8 daga — samkvæmt áætlun —, þá hafið þið komizt að ^ raun um það, að slíkt ferðalag er heillandi. í fyrstu ræður ævintýraþrá og nýjungagirni unglinganna, en framvegis aðdráttarafl hinnar hrikalegu náttúrufeg- urðar. Þar má líta stór og fögur fiskivötn, víðáttumikla mosaása, oft vafða fjallagrösum, stórar brokflár með seftjörnum eða risavaxin fell, sem líkjast helzt heysæt- um á engjateigum, nema þúsund sinnum stærri. Eru þó ótaldir allir þeir lækir og allar þær ár, sem falla í ýmsar áttir, en renna þó á endanum allar til sjávar, eins og allar æðar líkamans renna til hjartans. I suðri gnæfa jöklarnir við sjóndeildarhringinn, og líta út eins og glitr- - andi ljóshaf, þegar sólin varpar geislum sínum á þá. Svona er nú yfirlitið yfir óbyggðirnar í stórum dráttum, og þannig geymast þær í heimi minninganna, þó langt sé liðið frá því að þær voru yfirgefnar síðast. Þó hafa óbyggðimar annað að bjóða stundum, þegar hríðar geisa þar dag eftir dag, eins og við getum gert okkur ljóst af afdrifum Reynistaðabræðra. En hinu gleyma menn fljótt, þó menn verði að glíma við óblíð náttúraöfl í 1—2 daga, ef ekki verða þeim samfara slys- farir eða þ. u. 1. Næsta haust syngjum við aftur: „Eins mig fýsir alltaf þó aftur að fara í göngur.“ Sumarið 1916 var ég kaupamaður á Sólheimum í Svínavatnshreppi, hjá Hannesi Sveinbjörnssyni, sem þar bjó þá. Ég var ráðinn yfir allan sláttinn, til rétta. En er líða tók á sláttinn, fór að vakna löngun hjá mér að fara í göngurnar. En hinsvegar hafði ég enga von um það, því Hannes var búinn að lofa fóstursyni sínum, Þorleifi Ingvarssyni því að fara. Hann var þá 16 ára, og var það í fyrsta sinn, sem hann fékk það leyfi. Hins- vegar hafði ég farið í göngur 7 undanfarin haust, eða frá því ég var 13 ára. Allar á Auðkúluheiði, að undan- teknum einum, sem voru Sandgöngur á Grímstungu- heiði. Þetta sumar gengu mislingar víða um hreppinn um heyskapartímann, og tafðist fólk víða frá vinnu í 1—2 vikur. Grasspretta og nýting var þó allgóð það sumar, og grös féllu seint, enda seint gróið eftir hið alræmda vor 1916. En Sólheimaheimilið komst þó alveg hjá mislingunum, vegna einangrunar. Við piltarnir, sem vorum 4, höfðum okkur það til afþreyingar á sunnu- dögum að sitja heima og spila „lander“ eða „kaupalú“, á milli þess, sem við tókum hesta okkar og fórum eitt- hvað fjarri alfaraleiðum, svo að við gætum á engan hátt tekið „pestina“. Viku fyrir göngur kom Lárus Stefánsson, bóndi á Auðkúlu — síðar í Gautsdal — heim að Sólheimum og fór þess á leit við mig, að ég færi fyrir hann í heiðar- göngur. Hann hafði orðið illa úti með heyskap, vegna mislinga um sláttinn, og langaði til að geta haldið áfram heyskap til réttar. Þessi beiðni var auðsótt við mig, en eftirgjöf á þessum 5 dögum varð hann að semja um við Hannes. Fremur var Hannes tregur til að gefa þessa daga eftir, en þó fór svo að lokum, að hann gaf leyfið með þeim skilyrðum, að ég liti til með Þorleifi í göng- unum, ef hann þyrfti þess með. Föstudaginn í 22. viku sumars lögðum við af stað í göngurnar. Þá var kominn haustblær yfir allt, en hey- skapur í fullum gangi, enda tíð allgóð. Kvöldið fyrir hafði ég farið yfir að Auðkúlu, því þaðan átti ég að hafa allt úthald, s. s. hesta og nesti. Venjulegast er það svo, að gangnamenn fara á fremstu bæi byggðarinnar á fimmtudagskvöld, einkum þó úr Blönduóss- og Torfa- lækjarhreppum, svo og úr utanverðum Svínavatns- hreppi. En við þrír sátum þó heima: Þorleifur á Sól- heimum, Stefán Eyjólfsson á Svínavatni og ég á Auð- kúlu, — og ákváðum að hittast við Auðkúlurétt kl. 7 að morgni. Þó gátum við búist við að aðal þorri gangna- manna væri á sama tíma að leggja upp af fremstu bæj- unum. Þar af leiðandi vorum við 12—15 km. á eftir. Hestarnir, sem ég hafði, voru bræður og báðir gráir. Hét annar Þröstur, en hinn Þumall. Ég hef aldrei fyrr né síðar haft jafn góða gangnahesta. Á tilsettum tíma komum við að réttinni, og það svo samtímis, að við áðum þar ekki einu sinni. Leiðin lá svo fram Sléttárdal, fram Selbungu, fram Buga, fram Helluvörðuás fram hjá Friðmundarhöfða og fram Mosás og þaðan eins og götur liggja að Kólguhóli.1) Þegar við komum í 1) Kólkuhól nefna sumir hann. — Greinarhöf. Heima er bezt 7

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.