Heima er bezt - 01.01.1958, Síða 25
Úr sunnanverðum miðbœnum á Akureyri og séð upp „SuðurbrekkunaStóra húsið fremst til vinstri er Prentverk
Odds Björnssonar, þar sem „Heima er bezt“ er prentað.
og gerði fögur blómabeð. Er það mesta yndi góðrar
konu, að auka gróður og fegurð í kringum sig.
Gróðurinn í bænum gerir hann hlýlegan og heillandi
um sumartímann, og mikið fuglalíf er í bænum vegna
trjágarðanna. Á Akureyri getur maður vaknað um vor-
nótt við fuglasöng, eins og sofið væri í tjaldi í skógi-
vöxnu dalverpi.
Á Akureyri eru starfandi þrír barnaskólar, fjölsóttur
menntaskóli og gagnfræðaskóli og auk þess ýmsir sér-
skólar. Skólanemendur setja því mjög svip sinn á bæinn
yfir vetrartímann. Ennfremur er þar ágætt íþróttahús
og úti- og inni-sundlaug. lýirkja er nýlega reist á Akur-
eyri, veglegt hús, sem ber hátt yfir bæinn. Hún er
kennd við þjóðskáldið Matthías Jochumsson.
Hinn 17. júní ár hvert ber mikið á ungum piltum og
stúlkum með hvítar húfur. Eru það nýútskrifaðir stúd-
entar og eldri, sem halda þannig daginn hátíðlegan.
Hús skáldanna.
Margar fallegar og sögulega merkar byggingar eru á
Akureyri, en hér verða aðeins nefnd tvö hús. Eru það
Sigurhæðir og Nonnahús.
Á Sigurhæðum bjó þjóðskáldið Matthías Jochums-
son. Það er gamalt, fremur lítið timburhús á brekku-
brún. Eru margar tröppur upp hratta brekkuna heim
að húsinu. Vafalaust stendur hús þetta enn um marga
áratugi og ef til vill aldir, til minningar um þjóðskáldið
sem þarna bjó.
Nonnahús var æskuheimili Nonna, séra Jóns Sveins-
sonar, hins heimsfræga sagnaskálds, sem samið hefur
hinar þekktu Nonna-bækur. — Hjónin Sigríður Davíðs-
dóttir og Zophonías Árnason, er voru eigendur þessa
húss, hafa nú gefið það einu af kvenfélögum bæjarins,
Zonta-klúbbnum, sem hefur komið þar upp safni til
minningar um séra Jón Sveinsson, sem öll ungmenni
íslands elska og virða, hafi þau lesið bækur hans.
Enn er Akureyri skáldbær, og vel geta hús skáld-
anna orðið fleiri, þegar áratugir líða. — Þjóðskáldið
Davíð Stefánsson á þar sitt hús og heimili ásamt fleiri
skáldum.
Heima er bezt 23