Heima er bezt - 01.01.1958, Side 35

Heima er bezt - 01.01.1958, Side 35
höfðu komið norður til að vera við jarðarförina. Þeim fannst sjálfsagt, að maddaman héldi áfram búskapnum og lofuðu að útvega henni duglegan ráðsmann. Stefán lofaði að verða þar á heimilinu, þangað til hann kæmi, sá mikli ráðsmaður. Rósa fór með þeim hjónum austur og ætlaði að verða þar eitthvað, til að gleyma sorg sinni, sem var mikil, því að hún hafði verið mikið eftirlætis- barn föður síns. Svo kom hann, þessi myndarlegi ráðsmaður. Kristján hét hann, lærður búfræðingur frá Ólafsdal, myndarleg- ur maður og söngmaður mikill. — Vinnukonurnar og heimasæturnar urðu strax stórhrifnar af honum, þegar þær heyrðu hann syngja í fyrsta sinn í kirkjunni, þegar nýr prestur heilsaði söfnuðinum. Það var hátíðisdagur. Nýi presturinn hét séra Gísli, ungur maður og ógift- ur. Hann settist að úti í kaupstaðnum og kom aðeins að Hofi til að embætta. Þar var mannsefni handa Rósu litlu, sögðu konurnar í torfunni. Þær höfðu alltaf svo gaman af því að para saman fólkið. Stefáni hafði strax verið gefin Lauga á Þúfum. Hvað var ekki komið á daginn? — En hvað átti þá að velja handa ráðsmannin- um? Ekki myndi hann fá hryggbrot hjá stúlkunum þar í sókninni. Þær sáu bara engan við kirkjuna nema hann; ekki einu sinni prestinn, og var hann þó myndar- maður. Það var þó ein gömul kerling þarna úr nágrenninu, sem rölti með prjónana sína heim á prestssetrið nokkr- um dögum eftir að hann kom og náði í bollann, sem hann hafði drukkið úr. Hún sagði, að það myndi ekki verða lengi, sem hann hefði miklum vinsældum að fagna, maðurinn sá, ef sér væri ekki farið að förlast. En vinnukonurnar á prestssetrinu létu það í Ijós, að hann væri svo sem nógu hælavakur kringum blessaða mad- dömuna og hún hefði aldeilis yngzt upp og gleymt sorg sinni, strax og hann hefði verið kominn á bæinn. Hún reið við hlið hans í kaupstaðinn með ullarlest- ina. Það þótti myndarlegt par. Hann átti fallegan, rauð- an hest og sat hann vel. Hún var líka tilkomumikil kona, þegar hún var setzt í söðulinn í þessu síða reiðpilsi, sem náði fyrir víst kvartil niður fyrir fótaskörina, og með svarta slörhattinn á höfðinu. Kristján var líka ólíkt álit- legri en blessaður gamli presturinn hafði verið. Hann hafði líka verið þó nokkrum árum eldri en maddaman. Sennilega álíka mörgum og Kristján var yngri. Það þóttust allir í nágrenninu vissir um, að hann yrði eftir- maður séra Jóns, nema í hempuna myndi hann aldrei fara, til þess vantaði hann lærdóminn. Hún var náttúr- lega talsvert fullorðinsleg við hlið hans, blessuð mad- daman, enda komin nokkuð á fimmta tuginn, en hann mátti víst vera ánægður með að setjast í þetta litla bú og eignast Hof og allar hjáleigumar. Maddaman hafði víst sagt Kristjáni frá því, hvemig búskaparlag maður hennar hafði, því að ekki var sparað að senda til hjáleigubændanna og bjóða þeim vinnu. Þeir þurftu ekki að vera óánægðir yfir því, að þeir fengi ekki að vinna af sér eftirgj aldið. Ráðsmaðurinn kom oft sjálfur heim í kotin til að bjóða þeim vinnuna. Einu sinni talaði hann um það við húsmóðurina, hvort leiguliðarnir gætu ekki farið heim til sín og borðað þar, þetta væri svo stutt. En hún aftók það alveg. Það væri nú skárri ómyndin, ef þeir fengi ekki að borða, þegar þeir væru að vinna heimilinu. Þá var eklti talað um það meira. „Hvernig er það, Karen,“ sagði Kristján, þegar átti að fara að taka upp móinn, „þú biður hann aldrei að vinna hjá þér, þennan vinnumann, sem fór frá þér í vor og er nú á Þúfum, þó sýnist mér hann vera talsvert dugnaðarlegur.“ „Ég býst ekki við að hann ætli sér að vinna utan heimilis, nema hann fái visst kaup á hvern klukkutíma. Ég ætla ekki að borga honum það. Hann var heldur aldrei beint mér að skapi, en Jóni mínum féll vel við hann,“ svaraði hún. Og hjáleigubændurnir sögðu Kristjáni, að Stefán hefði alltaf hætt vinnu, þegar klukkan hefði verið orðin tíu á kvöldin, nema þegar eitthvað sérstakt hefði verið um að vera, svo sem rúningur eða heyband. „Við skulum sjá, hvort ekki er hægt að lægja rostann í karli,“ sagði Kristján. Daginn eftir sendi hann smalann suður að Þúfum með boð um, að Stefán gæti fengið að taka upp mó næsta dag. Drengurinn kom aftur með þau skilaboð, að hann ætlaði sjálfur að taka upp mó. „Mér datt það í hug, að svarið yrði svona,“ sagði maddaman. „Hann þykist vera eitthvað,“ sagði Kristján. Svo raus- aði hann heilmikið yfir því, hvernig sumt fólk reyndi að belgja sig út og gera sig merkilegt, sem ekkert gæti eða kynni. Nokkru seinna var sent til Stefáns og þá með sltrifað skjal, þar sem honum var sagt, að nú yrði hann, eins og aðrir hjáleigubændur, að slá hálfan mánuð hjá lands- drottni sínum, sem nú væri maddama Karen. Stefán svaraði skriflega. Sagðist hafa byggingarbréf, skrifað af prestinum sáluga. Þar væri ekki minnzt á neinn slátt, aðeins fimm sauða eftirgjald. Nú fór að kárna gamanið, og sjaldnar var farið á milli bæjanna en áður. Kristján lagði jafnan Stefáni illt á bakið við nágrannana. Þeim þótti ekkert að því, að heyra það. En svo fór þó, þegar leið á sláttinn, að þeir sáu þann kost vænstan að neita vinnu hjá þessum veit- ula manni. Að öðrum kosti gætu þeir ekki heyjað handa sínum eigin skepnum. Og þá var ekki talað betur um þá. Þegar leið að hausti og svellið kom á mýramar aftur, komu unglingarnir saman á kvöldin, eins og áður, og nú var ráðsmaðurinn með og kenndi þeim danssporið. Stefán á Þúfum kom aldrei á svellið, þegar Kristján var þar. Það leit út fyrir, að þeir gætu ekki þolað nær- veru hvor annars, en kærasta Stefáns og systur hennar, sem voru innan við fermingu, létu sig ekki vanta. Kristján lofaði þessum lífsglöðu unglingum að hann skyldi kenna þeim vel að dansa, þegar sorgarárið væri liðið. Hér væri allt svo óþægilegt úti í kuldanum. Svo fundu líka allir, að það vantaði mikið á, að glaðværðin Heima er bezt 33

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.