Heima er bezt - 01.12.1975, Blaðsíða 16
*
tt
w
n
u
Q
u
n
i
m
, !
%
★
SIGURÐUR GISLASON:
JÓL
í dag er hátíð haldin.
Húsið fágað um gólf og þil.
Rafljós í hverjum kima.
Krakkarnir hlakka til.
Ilmur af ágætum réttum
angar um stofurnar.
Háir staflar af hátíðagjöfum
hreykja sér alls staðar.
Útvarpið flytur í erg og gríð
óskir úr sveitinni.
— En eitthvað held ég að hafi gleymst
í hátíðaösinni.
í dag er kveikt á kertum.
Kökur étnar, sem vera ber.
Greni-ilmurinn inni
angar í vitum mér.
Fólkið í fínum klæðum
fagnar hátíð í dag.
Ungar raddir ómþýðar syngja
ævafornt sálmalag.
Ligg ég og totta liprum vörum
ljúffengan vindilinn.
í minningu hvers er hátíðin haldin?
— Hvað hét nú maðurinn?
%
: 1
w
n
y
m
* ]
%
%
* 1
%
%
y
: ]
á
%
i 1
W
m
! ]
Heiðmundur
Hjaltason,
Suðurgötum.
Virðulegur fulltrúi
gamla timans.
og var þar bústýra í 2 ár í Borgarfirði. Að því starfi
loknu réðst hún sem bústýra að Rjómabúinu við
Deildará í Mýrdal. Þar var hún bústýra í 2 ár, en áður
en hún lærði var hún búin að vera hjálparstúlka við
það bú í 3 ár.
Árið 1912, ræðst hún sem vinnukona til Gunnars Ól-
afssonar og Jóhönnu Eyþórsdóttur í Vestmannaeyjum,
var hún þar á því myndarheimili í 2 ár, eða til 1914
þá er hún giftist þar Einari Einarssyni frá Reyni í Mýr-
dal. Það ár, 1914, flytja svo ungu hjónin til Víkur í
Mýrdal og stofna þar heimili. Þar í Víkinni átti Kristín
svo heima til ársins 1941, er hún flyst til Reykjavíkur
og stofnar heimili þar.
Eiginmann sinn missir Kristín árið 1927, var hann
innanbúðarmaður hjá Kaupfélagi Skaftfellinga, og for-
maður við góðan orðstír, síðan hefir Kristín búið sem
ekkja.
Það sem hér að framan hefir verið sagt um störf
Kristínar Ingileifsdóttur, er ekki nema annar þáttur í
störfum hennar.
Árið 1909 fór hún í ljósmæðraskólann í Reykjavík,
og útskrifaðist þaðan sem ljósmóðir sama ár.
Árið 1925 gerist hún svo ljósmóðir í Hvammshreppi,
og gegnir því starfi til 1941, þá gegndi hún og starfi við
ljósmóðurstörf í Dyrhólahreppi í forföllum. Störf
Kristínar sem ljósmóður þóttu með ágætum, trú-
mcnnska og skyldurækni sátu þar í fyrirrúmi.
1 Vík tók Kristín virkan þátt í félagsmálum, og um
slceið tók hún þátt í leikstarfsemi sem Kvcnfélag
Hvammshrepps stóð að um árabil.
Árið 1945 hóf Kristín störf við Alþingi, og starfaði
þar til 1968 cr hún lét af starfi fyrir aldurs sakir. I því
starfi komu fram sömu eiginleikar og við hin önnur
scm um getur hér að framan, trúmennska og skyldu-
rækni.
1971 flyst Kristín svo til dóttur sinnar Sigríðar, og
manns hennar Ragnars Sigurðssonar, að Korpúlfsstöð-
um í Mosfellssveit, dvelur hún þar sátt við allt og alla
87 ára að aldri.
Þau hjón, Kristín Ingilcifsdóttir og Einar Einarsson,
eignuðust 5 börn sem uppkomust, eru þau öll á lífi og
hinir traustustu stofnar hvcrt á sínu sviði.
Magnina G. Kristjánsdóttir, Dalsmynni, Búðardal, Laxárdal,
Dalasýslu, óskar að skrifast á við stráka á aldrinum 16—23 ára.
Mynd fylgi helst með fyrsta bréfi.
Guðrún Riignvaldsdóttir, Holti, Búðardal, Laxárdal, Dalasýslu,
óskar að skrifast á við stráka á aldrinum 14—17 ára. Mynd fylgi
helst með fyrsta bréfi.
Auður Magnúsdóttir, Sólheimura, Grímsnesi, óskar eftir penna-
vinura á öllura aldri.
Rós Maria Benediktsdóttir, Sóheimum, Grímsnesi, óskar eftir
pennavinum á ölum aldri.
Margrét Jónsdóttir, Hörgshlíð, Reykjafjarðarhreppi, N.-ís., óskar
eftir brcfasambandi við stráka og stelpur á aldrinum 20—25 ára.
Svarar öllum bréfum.
414 Heima er bezt