Heima er bezt - 01.12.1975, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.12.1975, Blaðsíða 20
 LAND- NEMALÍF OG VEIÐI FERÐIR ÆVIMINNINGAR GUÐJÓNS R. SIGURÐSSONAR 13. HLUTI HANN VARÐ 110 ÁRA Ég vil geta hér fyrst kaupniannsins í Thicked Port- age. Hann hét Cowin. Það var stór og myndarlegur maður og græddi víst góðan pening um tíma, þegar hann var einn um verzlunina í Thicked Portage. Hann átti víst glaðværa daga í The Pas, þegar hann fór í bæinn, bæði til að lyfta sér upp og í verzlunar- erindum. Þar kynntist hann konu sinni fyrst. Hún var þá nýkomin frá Englandi og var auðvitað að skima eftir manni. Leist henni vel á að krækja í þenn- an karl. Hann virtist ekki vita, hvað hann ætti að gera við peningana sína, eins og hann væri milljóna- mæringur. En það var ekki óalgengt, að menn, sem búnir voru að vera lengi einangraðir í norðrinu, væru örir á aurana, og þekkti ég einn karl vel, sem þannig var ástatt um. — En Cowin tók þessa konu og hefur sjálfsagt gifst henni. Þá var karl sextugur og hún bara tvítug. En Cowin var vinsæll hjá kven- þjóðinni. Var sagt, að frúin hefði fundið hann í ástarbrögðum við Indíánastúlku úti í skógi. Skamm- aði hún þá karl, en hann kvaðst vera orðinn leiður á henni. En konan var svo þrifin, að maður varð að vera hreinn á fótum til að mega koma inn í búðina. Cowin varð 110 ára gamall og verzlunin orðin að engu, þegar hann dó. Var konunni kennt um. Hún fór til Englands, gömul og fátæk, eftir lát manns síns. Alenn, sem þekktu Cowin, minntust hans mcð virðingu. ROMM í FÖTU Það vantaði rúmgott pláss til að dansa í, svo að við tókum okkur saman og leigðum stórt og rúmgott vöruhús Cowins. Gólfið var bara þykkir, brciðir plankar, sem voru lagðir það slétt, að með því að bræða vax og smyrja yfir allt gólfið, þá leit það út eins og lakkað. En það var nokkuð hált og betra að vera stöðugur á fótunum. Það voru nokkrir, sem voru góðir að spila á fiðlu, gítar og júkkalilli, að mig minnir. Og dansinn var stiginn af fjöri, að mér fannst. En svo kom vinur okkar, John Johnson, með fötu í hendi með einhverju í, sem var girnilegt á litinn. Ausa var í fötunni. „Hvað ertu með?“ spyr ég. „Ó, það er gott við þorsta,“ svarar John. „Smakk- aðu á.“ £g smakka á, þá var þetta bara ágætis romm. Svo fengu allir að smakka á því, sem var í skjólunni, og það lifnaði bæði yfir hljómsveitinni og dansinum. Einn lítill karl var að dansa við eina gríðarstóra dökka, og þau duttu á hinu ágæta gólfi. Heiður fyrir okkur, sem höfðum gert gólfið svona ágætlega hált. Svo tókum vð íslendingar lagið og sungum „ísland, ísland.“ Síðan smáhvarf fólkið á braut. Guðni Björnsson bauð okkur íslendingunum og Hans Norman heim til sín. Var farið á bát yfir vík- ina í vatninu út í eyjuna, þar sem Guðni bjó. Þar átti hann nokkuð góðan bjór. Eða ætti maður að kalla það mjöð? £g veit bara, að allir urðu býsna kátir, og það var sungið, svo að bergmálaði um allt vatnið í næturkyrrðinni. Það var lítil bryggja þarna, sem við bundum litlu bátana okkar við. Þarna var tilvalið að synda, og gerðu það nú allir, sem gátu fleytt sér. Var þetta bæði góð skemmtun og hrcssing. Meðal þeirra, sem syntu, var Böðvar Johnson fiski- maður og mikill fiðluleikari. Þegar hann var að klæða sig aftur í buxurnar og var að komast í seinni skálm- ina, datt hann aftur á bak í vatnið, en fæturnir voru samt uppi á bryggjunni. Hlupum við nú til tveir og tókum í sinn fótinn hvor. En svo klaufalega vildi til, að við héldum fótunum hátt, en maðurinn fór á kaf. 418 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.