Heima er bezt - 01.06.1977, Qupperneq 10
m.
Þórustaðir í Ölfusi.
— Það kom fyrir. Pétur var nú svo framúrskarandi
gestrisinn, að það mátti ekki renna bíll í hlað án þess að
hann byði fólkinu inn upp á mat eða kaffi, sama á hvaða
tíma dags það var og hvort þar var einn maður á ferð
eða tíu í hóp. Það gat komið sér illa, ég neita því ekki,
en Pétur var óforbetranlegur á þessu sviði. Ég get sagt
þér eina sögu, sem lýsir honum vel, mínum ágæta manni.
Það var verið að halda einhverja bændaráðstefnu í
Reykjavík, ekki man ég nú hvaða ár, en einn morgurt-
inn hringir Árni G. Eylands austur að Þórustöðum. Ég
er að vinna inni í eldhúsi, því klukkan var að verða ell-
efu, en heyri út undan mér að Pétur segir við Árna í
símann: „Það er alveg eins gott að þið látið fólkið bara
borða hérna.“ Ég bað nú fyrir mér í hljóði, enda kom
á daginn að þarna hafði ég verið dæmd til þess að taka
á móti sextíu manns með litlum fyrirvara, en það skilja
víst fáir nema húsmæður, hvað það þýðir.
— Ég á ekki orð.
— Það átti ég ekki heldur, ég varð alveg hvumsa. En
Pétur sagði: „Þetta verður allt í lagi, Ragna, ég fer yfir
á Selfoss og kaupi lax, svo get ég skroppið austur í
Mjólkurbú eftir skyri, þeir hræra rjóma saman við það
fyrir mig.“ Ég hélt það myndi nú þurfa að sjóða lax-
inn og ekki væri hægt að stýfa hann úr hnefa, einhver
áhöld myndi þurfa að taka til fyrir sextíu manns og
ekki gæti fólkið setið á gólfinu, þusaði ég.
— Én þetta tókst?
— Já, það tókst. Við settum allt í gang og gestirnir
fengu soðinn lax, grænmeti, skyr og rjóma.
— Varstu ekki alveg uppgefin, þegar stormurinn var
genginn hjá?
— Það læt ég nú vera, þessi hópur fór um miðjan
dag. En það kom fyrir, þegar gestir höfðu langa við-
dvöl, að ég var orðin alveg úrvinda um níuleytið á
kvöldin, eftir langan og strangan vinnudag. Ég man að
ég sagði einhverju sinni við sjálfa mig: „Skyldi þetta
blessað fólk ætla að sitja hér til eilífðarnóns?“ Þú ræð-
ur, hvort þú festir þetta á blað, en það er ekki annað en
sannleikur, ekki annað en það sem svo margar íslenskar
Framhald á bls. 192.
190 Heima er bezt