Heima er bezt - 01.11.1977, Blaðsíða 11
„Svo ekki veréi kafðar nendur
á mínum gráu nárum
1
Sagan sem hér verður sögð markaði
engin spor í samtímann eða skildi
nokkuð eftir sig til framtíðarinnar.
Gildi hennar felst fyrst og fremst í
því að hún er hluti af þjóðl'fsmynd,
frásögn af næsta einangruðu fyrir-
bæri í lífsstríði horfinnar kynslóð-
ar sem lifði og starfaði á því svæði
sem í dag gengur undir heitinu Ak-
ureyrarkaupstaður, en var á tímum
sögunnar skipt niður með sérstökum
heitum eftir landslagi og staðháttum
sem sum hver lifa enn á vörum íbú-
anna.
Kveikjan að upprifjun atburðanna
er sendibréf sem skrifað var inní
Fjörunni á áttunda degi janúarmán-
aðar árið 1861. Samkvæmt íbúaskrá
átti bréfritari heima í 32. húsi1 versl-
unarstaðarins Akureyrar, en það
mun hafa verið þriðja hús að norð-
anverðu við svonefnt Skammagil
sem er innarlega í Fjörunni. Beggja
megin við gil þetta var dálítil byggð
handverks- og tómthúsmanna þessa
hægt vaxandi bæjarfélags þar sem
308 sálir bjuggu.2
Bréfritari hét Björn Jónsson. Hann
er kunnur maður úr sögu Akureyr-
ar. Lesendur munu fá litla vitneskju
um hann í þessum þætti því honum
er helgaður annar hér á eftir. Þó
þykir eftir atvikum rétt að segja frá
því að hann þótti ágætis karl og var
vel að sér um ýmsa hluti, en svol'tið
Mynd þessi, sem notuð verður sem
einkennismynd allra þessara þátta,
er af konu á Akureyri og er eftir
óþekktan danskan listmálara. Mynd-
er tekin eftir eftirprentun sem er í
eigu Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum.
siðavandur og umvöndunarsamur á
stundum.
Bjöm Jónsson taldist raunveralega
til stéttar tómthúsmanna sem ekki
þótti neitt sérlega virðingarverð á
hans dögum. En þar sem hann sjálf-
ur naut nokkurs álits þótti embættis-
mönnum, kaupmönnum og öðru
fyrirfólki Akureyrarverslunarstaðar
það kurteisi að kalla hann assistent
Johnsen. — Titlar uppá dönsku og
nafngiftir að þeirrar tungu háttum
var þessu fólki jafn nauðsynlegt og
matur og drykkur. Assistent var
maður sem vann við verslunarstörf,
— og Bjöm Jónsson fékkst allmikið
við þau.
Meinyrtir landar hans vildu þó
halda því fram að assistent og dönsk
búðarloka merkti eitt og hið sama.
Þess vegna kusu nágrannarnir, hand-
verks- og tómthúsmennirnir, að að-
greina hann frá öðrum mönnum
sem Björn ritstjóra eða Björn versl-
unarstjóra. Á þessum janúardegi
voru þó liðin næstum því fjögur ár
frá því að Björn Jónsson hætti að
skipta sér af ritstjórn blaðsins Norðra
sem hann hafði átt manna mest þátt
í að hleypa af stokkunum.
Að ári liðnu frá skrifum umrædds
sendibréfs höguðu atvikin því þannig
að Bjöm gerðist aftur ritstjóri og
gerði blaðamennsku og prentsmiðju-
rekstur að ævistarfi upp frá því. Sú
saga verður ekki rakin í þessari frá-
sögn.
2
Síðasti dagur ársins 1860 á Akureyri
hafði kvatt með norðan bálviðri og
Heima cr bezt 359