Heima er bezt - 02.10.1993, Side 62
JÚLÍUS HAVSTEEN:
MAGNÚS HEINASON
Leikrit, sem byggt er á gamalli ættarsögu
og munnmælum og fjallar um átök
tveggja stórbrotinna manna, sævíkingsins
og ríkisféhirðisins, sem báðir nutu hylli
Danakonungs en voru sjálfir hatursmenn.
132 bls.
Bók nr. 7001 HEB-verð kr. 350
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR:
HUGSAÐ HEIM
58 kvæði. Kærkomin bók allra hinna
mörgu aðdáenda Ingibjargar.
Bók nr. 7002 HEB-verð kr. 700
PÉTUR AÐALSTEINSSON
frá Stóru-Borg:
BÓNDINN OG LANDIÐ
í þessum hugþekka ástaróði íslensks
bónda til landsins og moldarinnar, eru 30
gullfalleg kvæði í hefðbundnum stíl.
Bók nr. 7003 HEB-verð kr. 300
JÓN BJARMAN:
LÝSING
Ljóð eftir Jón Bjarman. Bókin skiptist í eft-
irfarandi kafla: Land, Fólk, Land og fólk í
vestri og Fólk úr orði.
Bók nr. 7004 HEB-verð kr. 250
GUÐMUNDUR FRÍMANN:
DRAUMUR UNDIR
HAUSTSTJÖRNUM
LJÓÐ
Úr ritdómi eftir Helga Sæmundsson, rit-
höfund:
„Og um það verður ekki deilt að G.F. er í
hóþi snjöllustu Ijóðskálda samtíðarin-
nar...Honum hefurtekist að breyta órum
og hugboðum í áhrifamikinn, hugðnæm-
an og göldróttan skáldskap. Kvæðin reyn-
ast því snjallari sem maður les þau oftar.“
Bóknr.7005 HEB-verð kr. 150
JÓN BJARNASON
FRÁ GARÐSVÍK:
ANDVÖKURÍM
Úr „einskonar formála“:
íslendingar allir þrá
óðargrip að smíða.
Tilrauninni fæstir frá
feitum hesti ríða.
Meðan aðrir eiga skjól
undir draumsins runni
Bragi að mér borð og stól
ber í andvökunni.
Bók nr. 7006 HEB-verð kr. 250
ÞORSTEINN FRÁ HAMRI:
FIÐRIÐ ÚR SÆNG
DALADROTTNINGAR
„List og skáldskapur eru, þegar allt kemur
til alls, fyrst og fremst spurnir um manninn
sjálfan og innstu kviku hans,“ segir einn
gagnrýnandi um Þorstein í ritdómi. „Þor-
steinn frá Hamri efar og uggir, en um hitt
verður tæpast deilt að hann glímir einarð-
lega og drengilega við þetta sameiginlega
leyndarmál allra manna.“
Bók nr. 7007 HEB-verð kr. 400
BRAGI SIGURJÓNSSON:
SUNNAN KALDBAKS
LJÓÐ
Ljóð úr bókinni:
Kvöldsvala leggur inn Kjalarnes,
Keilir í skugga dokar,
Hengillinn neðar á höfuð sér
hatti regnvotum þokar.
Máfur stakur við
Úlfarsá yfir smásílum vokar.
Bók nr. 7008 HEB-verð kr. 250
BRAGI SIGURJÓNSSON:
SUMARAUKI
LJÓÐ
í afmælisgrein um Braga Sigurjónsson
sextugan segir Kristján skáld frá Djúþa-
læk m.a.:
„Nú ber ég fulla virðingu fyrir manni hinna
fjölbreyttu starfa, á vettvangi dægranna,
en sþá mín er sú, að framtíðin muni leng-
ur muna og hafa áhuga á Ijóðskáldinu
Braga Sigurjónssyni, og afrakstri hinna
hljóðu stunda í lífi hans, er hann gekk inn
í helgidóm hjarta síns og söng eins og lík-
ur væru að enginn heyrði til.“
Bók nr. 7009 HEB-verð kr. 150
BALDUR EIRÍKSSON
FRÁ DVERGSTÖÐUM:
DVERGMÁL
LJÓÐ
Lítið mun höfundur hafa fengist við kveð-
skap á uppvaxtarárum sínum, en þegar
hann kom til starfa hjá KEA voru þar
starfandi nokkrir snjallir hagyrðingar og
spéfuglar, sem hvergi spöruðu yrkingar.
i Var þar ekki deigum vært, og vildi hann
þá ekki láta sinn hlut eftir liggja.
Bóknr.7010 HEB-verð kr. 300
BALDUR ÓSKARSSON:
STEINARÍKI
Erlingur Halldórsson segir svo um kveð-
skap Baldurs:
„Einkenni á Ijóðagerð Baldurs Óskarsson-
j ar virðist mér vera skörp sjón, djúp íhygli
! og þróttmikill kliður hendinga. Hann er
kjarnyrtur, Ijóðform hans yfirleitt þröngt og
| málfarið agað... Undantekningarlítið er
eining efnis og forms fullkomið en það má
telja aðal skáldskapar."
Bók nr. 7011 HEB-verð kr. 250
RAGNAR INGIAÐALSTEINSSON:
EN HITT VEIT ÉG
Ljóð úr bókinni:
Líður kvöldið, Ijós er slökkt
lokast dagsins brautir.
Malbik svefnsins mjúkt og dökkt
mildar hugans þrautir.
Nýjar lendur nem ég einn
nóttin vitjar sinna.
Fer á kostum frjáls og hreinn
Fiat drauma minna.
Bók nr. 7012 HEB-verð kr. 250
JÓHANN M. KRISTJÁNSSON:
SÁL MÍN HLUSTAR
Höfundur þessa Ijóðakvers er Norður-
Þingeyingur, Jóhann M. Kristjánsson frá
Skoruvík á Langanesi. Hann hóf sig upp
úr heilsuleysi með þrotlausri líkamsrækt
um árabil á unga aldri og varð efldur að
líkamsburðum. Síðar lagði hann rækt við
62
Bókaskrá