Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 18
Auka hita ellismellir
ýmsum liðamótunum.
Og hann bætir við:
„Ég geng við staf alla daga úti og inni, með gervilið í
báðum mjöðmum:“
Stafur minn ei stendur kjur,
styrks mér hótar varna.
Hann er fjári hrekkjóttur,
horngrýtið „að tarna. “
„A 79 ára afmælisdegi mínum:“
Helst við lestur held mig iðinn,
hyggjubrests með gæðastig.
Ars erfrestur ennþá liðinn,
án þess prestur husli mig.
„Fótaferð kl. 6 um nótt til mjólkurflutnings í vondri
færð:“
Eg með letifram úrfer,
fínir þankar dvína.
Er úrfletifram ég ber,
fúna skanka mína.
„I kapphlaupi um völd boða allir flokkar við hverjar
kosningar betri framtíð, ef þeir nái kjöri, en efndir sýnast
mér sjaldan sjáanlegar:“
Sýnd er gylling, sífellt ný,
síst afgóðu tagi.
Það er spilling afleit í
okkar þjóðfélagi.
Oskar Þórðarson frá Haga kemur einnig víða við í sín-
um vísum og hefur þessi orð um lífið og tilveruna:
Svartsýni
Þunga drauma hefég haft,
hroll að karli setur.
Það þarfmeira en mennskan kraft,
svo manni líði betur.
Staka
Til að þræða þröngan stig
þarfað hyggja og sveigja,
og gera títt við sjálfan sig
samning um að þegja.
Spakmæli
Krosstré bregðast æði oft
eins ogfleiri spýtur.
Mérfinnst þurfa meira loft
í mann sem ekkiflýtur.
Hestavísa
Lék á skeiði listatök
langa heiðavegi.
Fótagreiður fjallabök
fór á heiðum degi.
Um gamlan bónda
Þynnist vangi, kólnar kinn,
kaun á vörum springur.
Baslar enn við búskapinn
boginn Islendingur.
Heillaósk
Ollum vinum óska ég
árs hins góða friðar,
þar sem yfir æviveg
allt til bóta miðar.
Áskorunin
Og þá er að vinda sér í áskorunarliðinn. Við höfum
fengið Kára Kortsson til að ljóða áskorun á lesendur að
þessu sinni og hann spyr:
Ertu í kviðlings kátu lyndi
karlinn góður nú um stund,
eða súru, kviku syndi,
sem að tefur vísnafund?
Kvenkynshagyrðingar setja að sjálfsögðu „konan
góða“ í staðinn fyrir „karlinn góður“ í ofangreindri vísu.
Þar sem þátturinn heitir „Komdu nú að kveðast á...“
væri gaman ef svarvísumar byrjuðu á bókstafnum „D“
eins og tíðkað var, þegar menn kváðust á hér á ámm
áður, en eins og flestir vita, þurfti næsta vísa alltaf að
byrja á sama staf og sú síðasta endaði á.
Þetta er að sjálfsögðu ekkert skilyrði hér og nú, og er
ykkur frjálst að senda vísur, sem hafa aðra upphafsstafi.
En fyrir þá, sem vilja spreyta sig á þessum gamalkunna
sið, er hér upplagt tækifæri til þess.
Kveðjum við svo að sinni og minnum á heimilisfangið:
Heima er bezt,
Pósthólf8427,
128 Reykjavík.
54 Heima er bezt