Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 15
13. Voru ferskar jurtir lagðar við sár? Gátu þær verið mismunandi eftir því, hvort sárið var á karli eða konu? 14. Hvemig var græðisteinn notaður og úr hveiju var hann? 15. Kannast menn við, að gott þætti að bera myglu, tað eða tóbak á sár eða leggja eirpening við? 16. Kannast menn við að hundur væri látinn sleikja sár? Þekkja menn orðtækið „Kattartungan særir, hundstungan græðir?“ Hvað fólst íþví? 17. Hvað var gert til að draga út ígerð eða mar? 18. Hvers konar fmgurmein vom ILLA og BROMSA? 19. Kom það fyrir, að heimamenn eða aðrir leikmenn saumuðu saman sár eða byggju um beinbrot? Hvernig fóru þeir að? Nefnið dæmi. 20. Getur heimildamaður sagt frá skurðaðgerðum lækna og jafnvel leikmanna, sem hann man eftir við erfiða aðstöðu? Munið þið eft- ir, að stofuborð eða hurð væri not- uð við holskurð eða aflimun? 21. Hvemig var brugðist við kali? Þekkir heimildamaður dæmi um langvarandi áhrif kals? Var hægt að verjast kali með smyrslum eða öðmm ráðum? 22. Þekkja menn þulur eða málshætti um útlit sára og hvað af því mætti ráða um afleiðingar þeirra? B) Smitsjúkdómar og tímabundin veikindi 23. Hverjir vom algengustu sjúkdóm- ar á heimili þínu og þar sem þú þekktir til? 24. Hvaða fyrirbyggjandi ráðstafanir voru gerðar á heimilum til að forðast smit, þegar flensufaraldur, mislingar eða önnur skæð pest gekk um byggðir? 25. Hvemig var reynt að bregðast við berklum eða annarri brjóstveiki? 26. Þekkti heimildamaður aðstæður hjá berklasjúklingum? 27. Hver era kynni heimildamanns af bamaveiki? En stífkrampa? 28. Hvemig lýsti svonefnd taugaveiki sér? Vöm einhverjar fyrirbyggj- andi aðgerðir hafðar í frammi til að spoma við þeim sjúkdómi? Hvað var helst reynt að gera fyrir taugaveikisjúklinga? 29. Hvað merktu á þínum slóðum sjúkdómsheitin LÍFSÝKI og KALDA? 30. Hvaða skilning lögðu menn í orð- ið pest? 31. Hvemig var hægt að losna við njálg? Kannast heimildamaður við, að fólk væri látið drekka vatn blandað með sóti? 32. Hvaða ráð kunni fólk við höfuð- verk, magakveisu, brjóstsviða, hlustarverk og öðrum verkjum? Var eitthvert gott ráð til við niður- gangi? 33. Hvemig var reynt að lækna háls- bólgu eða kverkaskít? 34. Hvað var gert við svíðandi augu, vot augu eða augnasár? 35. Hvemig var reynt að stöðva blóð- nasir? 36. Hvemig var bmgðist við lungna- bólgu? 37. Hvaða ráð voru til við bamsfarar- sótt? 38. Hvað var gert við krakka sem veiktust eftir kúabólusetningu? Hver annaðist bólusetningu, hvar og hvenær? 39. Hvað var reynt að gera vegna þvagteppu, gallsteina, nýmasteina og slíkra innvortis sjúkdóma? 40. Kannast menn við gulu eða gulu- sótt og ráð við henni? 41. Hvað gerðu konur til að lina blóð- verki? 42. Þekkir heimildamaður einhverja aðferð til að stöðva náristil? Hvort notaði fólk orðið ristill eða nárist- ill um þennan sjúkdóm? 43. Hverjum var hættast við að fá heimakomu og hvemig var þessi sjúkdómur meðhöndlaður? Fœðingartœki úr eigur Tomas Klog landlæknis. Fæðingartöng, höfuðbor og fœðingarkrókur. 44. Urðu menn varir við kynsjúk- dóma? Hvaða orð vom einkum notuð um slrk fyrirbæri? 45. Hvað var gert fyrir giktveika? 46. Hvemig var bmgðist við tannpínu og öðrum tannsjúkdómum? Hafa menn heyrt um notkun háfþoms eða líkkistunagla í því skyni? Heima er bezt 51

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.