Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 13
Islenskir þjóðhættir úr safni þjóðar í HEIMA ER BEZT hefur nú göngu sína nýr efnisliður, sem unninn verður í samvinnu við þjóðháttadeild Þjóð- minjasafns Islands. Hugmyndin er, að þátt- urinn verði öðru hverju í blaðinu, nokkuð eftir efnum og ástæðum hverju sinni, stundum í hverju blaði, stundum með einhverjum hléum. átturinn mun að mestu leyti l]|verða byggður á spurninga- skrám þjóðháttadeildar, sem hun sendir reglulega út til fastra heimildamanna og afmarkaðra hópa fólks í þjóðfélaginu í leit sinni að svörum við ýmsum siðvenjum og at- höfnum í daglegu lífi fólks áður fyrr. Gengi þáttarins mun byggjast verulega á þeirri svörun, sem við munum fá frá lesendum blaðsins, og viljum við endi- lega hvetja þá, sem að ein- hverju leyti þekkja til þeirra atriða, sem spurt er um hverju sinni, að senda okkur svör og athuga- semdir sínar um viðkomandi atriði. Svörin við hverri spurningu þurfa alls ekki að vera löng, því að allt kemur að gagni. Ekki er heldur nauð- synlegt fyrir hvem og einn að svara öllum spurningunum. Nóg er að svara þeim, sem viðkomandi telur sig þekkja til og hafa svör við. Æskilegt er að svarað sé skriflega, en fyrir þá, sem einhverra hluta vegna hafa ekki tök á því, er hægt að hringja beint til þjóðháttadeildar í síma 28888, og mun starfsfólk henn- ar skrá niður viðkomandi upplýsing- ar. Það mun svo vinna úr öllum svör- um, sem berast, og birta nokkm síðar í HEIMA ER BEZT útdrátt úr þeim fróðleik, sem þannig hefur borist. Þjóðháttadeildin vinnur nú að spurningaverkefni, sem hún nefnir „Gömul læknisráð.“ Er þar verið að leita að margvíslegum svörum við spurningum um ráð manna við ýms- um kvillum og slysum, meðan heil- brigðisþjónusta og lyfsala var enn lítt þróuð, læknar fáir og langt eða erfitt að ná fundi þeirra. Þar sem næsta ómögulegt er að ná því að spyrja um allt það, sem til greina getur komið á þessu sviði mannlífs- ins, biðjum við lesendur að tína einfaldlega allt það til, sem þeim kemur í hug, þótt ekki sé um það spurt sérstaklega. Fyrsta viðfangsefni þessa þáttar, „Gömlum læknisráðum,“ munum við skipta í þrjá hluta. Spurningarnar eru margar, og munum við því birta þær í þremur tölublöðum. I þessu blaði verða það spurningar um meiðsli, smitsjúkdóma og tímabundin veik- indi. Ekki er nauðsynlegt að bíða með að senda okkur svör, þar til allir þrír hlutar spuminganna hafa birst, ágætt er að fá svör við hverjum þætti sér- staklega. Auk spurninganna um gömlu læknisráðin hefur þjóðháttadeildin áhuga á að fá upplýsingar frá fólki Heirna er bezt 49

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.