Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 16
Björnssonar (1905-1989) lœknis.
47. Hvemig var reynt að losna við
tennur án þess að leita tannlækn-
is? Hvemig brást fólk við tann-
læknum?
48. Oft er talað um, að fólk hafi
þjáðst af svefnleysi. Hver var tal-
in helsta ástæða þess og hvemig
var bragðist við því?
49. Hvaða ráð vom reynd við hiksta?
50. Hvemig var brugðist við lystar-
leysi?
Þorrablót
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafn ís-
lands hefur safnað töluverðu efni um
þorrablótssiði í eldri tíð. Hins vegar
hefur orðið útundan að huga að
breytingum, sem orðið hafa á síðustu
áratugum, en vitað er að þær eru
nokkrar og jafnframt oft bundnar
héruðum. Þess vegna leitar deildin
nú eftir upplýsingum um þorrablóts-
hald síðan hin nýja flóðbylgja þorra-
blóta hófst. Tímabilið, sem nú er
spurt um, nær allt fram í nútímann,
og eins og gefur að skilja geta menn
þá svarað spurningum um þetta, þó
að þeir séu bráðungir, jafnt og hinir
sem eldri eru.
Hér á eftir fara nokkur atrið, sem
menn eru beðnir að velta fyrir sér, og
helst að skrifa svörin niður á blað og
senda þjóðháttadeildinni eða Heima
er bezt.
1. Hverjir standa fyrir þorrablótum,
þar sem þú þekkir til, og hversu
lengi hafa þeir gert það? Tengjast
þau á einhvern hátt starfsemi átt-
hagafélaga nú eða fyrr? Undirbýr
sérstök nefnd þorrablótin? Hvern-
ig er valið í hana og hvert er hlut-
verk hennar ef svo er?
fundi“ þar sem þeir sem eru í fé-
lagi um trog hittast til að skipu-
leggja trogið? Eru samkomur
daginn eftir þorrablótið, þar sem
trogfélagar hittast með fjölskyld-
um sínum til að borða leifamar?
3. Teljið upp þorramatartegundirnar,
sem eru venjulegar, þar sem þið
þekkið til; súra, saltaða, reykta
eða nýja kjötrétti t.d., brauð
(laufabrauð?), mat úr sjó (hval,
sel) og meðlæti? Hvað er nýlega
komið til sögunnar (t.d. síld,
majonessalöt, kaldar kótelettur)
og hvað eru menn hættir að hafa
2. í hvernig húsnæði eru blótin
haldin? Er raðað upp borðum eða
raðað til borðs á sérstakan hátt?
Er dansað í salnum þar sem menn
borða (er salurinn ruddur áður en
menn taka til við dansinn)? Segið
frá skemmtiatriðum (eru t.d. ein-
hver föst atriði). Hverjir sjá um
þau og hvernig hefur þetta
breyst? Hvemig tónlist er á þorra-
blótum og hvað er dansað?
3. Hvenær byrja blótin og hversu
lengi standa þau? Sjá veitingahús
um þorramatinn eða koma menn
með hann að heiman? Hvernig er
hann borinn fram? Hvað ræður
því, hvernig menn sameinast um
trog, þar sem sá háttur er hafður
á? Þekkja menn svokallaða „trog-
(döndul, magála t.d.) síðan þið
fóruð að stunda þorrablót?
4. Finnst ykkur viðhorf til þorramat-
ar vera að breytast? Hvað finnst
ykkur sjálfum um þennan mat?
Hvað drekka menn með þorra-
matnum? Hefur meðferð áfengis
breyst á þorrablótum, síðan þú
fórst að stunda þau? Hafið þið
tekið eftir einhverju, sem er sér-
stakt fyrir þorrablótin, þar sem
þið þekkið best til? Hvað er langt
síðan orðið „þorramatur“ varð al-
gengt hjá ykkur.
Við þiggjum með þökkum kveð-
skap, sögur eða ljósmyndir, sem
tengjast þessu efni.
52 Heima er bezt