Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 17
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast á 28. þáttur jé ið höfum fengið ágætt vísnabréf frá Ólafi á Neðra- m Mbæ, eins hann nefnir sig í bréfinu, og hefjum við þáttinn nú á nokkrum vísna hans, en hann kallar þær „nokkrar vísur um sól, ský, fjöll og fleira.“ Daginn lengir Hopar njóla um hœnufet tilfalls, fer á ról til svartra nátta vals. Gyllir sólin hrúnir Bœjarfjalls, bráðum hóla og lautir Selárdals. Hattatíska Kaldbakur Skoðum Kaldbak skýjakljúf skipta um svið sem jafnan ber, hafandi sett á höfuð sér hatt úrfönn með þokuskúf. Sólin Sól vel örtuð, svifalétt, sést með skörtuð tygi; hefur björt á höfuð sett hatt úr svörtu skýi. Séð á tunglskinsgöngu Fjallaarmar firði lygnum fast að barmi þrýsta sér. Lýsir bjarmi loftsfrá skyggnum lands á sjarma þar og hér. „Húmar að kvöldi...“ Sólin kvíðir sökkva í æginn, sem hún líður hafs að brún. Nóttin bíður bak við daginn, bráðum ríður yfir hún. Ásmundur U. Guðmundsson frá Akranesi sendir okkur eftirfarandi vísur og fylgja skýringar hans með: „Margir sturlast af múgsefjun:" Öldin brengluð víða er víst vitið henglum rifið. Soraenglar sína list sýna þenglum lífið. „Þessi er ný og nafnlaus:“ Slœðumfalda fjöllin há frera valda tíðum. Kalda aldan ærðistflá undirhaldin hríðum. „Þegar yfirlýstur kjósandi Framsóknarflokksins mætti til vinnu eftir lasleika sögðu margir að hann hefði fengið Framsóknarveikina:“ Margt er veldur þrautum þar, þreki lyftfrá stalli. Því veikinflúði Framsóknar fljótust burt úr kalli. Sigtryggur Símonarson frá Akureyri ljóðar eftirfarandi: Á áttræðisaldri Vart mig strit að vellifellir, vex þó riðafótunum. Heimaerbezt 53

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.