Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.09.1996, Blaðsíða 4
Agcetu lesendw: Það er mannfólkinu áskapað að leita, horfa fram á veg- inn, finna leiðir, tæki og áhöld, sem stuðla að framforum og auknum þroska. Oft hefur mannkynið grætt á því að horfa til fóstur- móður sinnar, náttúrunnar, í leit að lausnum og hugmynd- um að nýrri tækni eða vinnuaðferðum, jafnvel heilsufars- bótum. Hún virðist eiga svör við öllu, bara ef við gefum okkur tíma til þess að gaumgæfa aðferðir hennar og framgang, sem í flestum tilfellum tekur mjög fram því sem við köllum hávísindi og snjallræði hin mestu. Starfsemi heila mannanna hefur um langa hríð valdið rannsókna- mönnum miklum heilabrotum, og hafa þeir sumir, mikið reynt að finna út hvernig heilinn starfar. Mætti því segja í þeim tilfellum að heilinn sé á fullu við að reyna að uppgötva sjálfan sig. Margvíslegan hag telja menn sig geta haft af því að komast að innstu leyndardómum starfsemi heilans. Mætti þar m.a. telja hugsanlegar lækningar á ýmis konar misstarfsemi í sumum stöðvum hans, sem valda margs konar óáran, minnisleysi, ruglingi, breytilegri greind, geðsjúkdómum ýmsum, o.sv.frv. Auk þessa telja menn sig geta nýtt sér þekkingu á starfsaðferðum heilans, við smíði á margfalt öflugri tölv- um en þekkjast í dag, og eru menn farnir að tala um líf- ræna tölvukubba, í fullri alvöru. Þó svo að tölvur dagsins í dag þyki orðnar geysiöflug- ar og til margra verka ótrúlega nytsamar, þá eiga þær enn geipilega langt í land til þess að nálgast það yfirgrip og þá miklu úrvinnslumöguleika sem heilinn hefur. Eitt með því nýrra, sem menn eru farnir að tala um í tölvutækninni, eru einhvers konar tölvukubbar úr próteini, sem er að sjálfsögðu agnarsmá eind, og yrði það virkjað með mismunandi litum lasergeislum, sem myndu örva próteinið á sama hátt og rafmagnið hefð- bundna tölvukubba, sem byggja á tvenndarkerfi, tölu- stöfunum 0 og 1, í mismunandi tölusætum. Áfram yrði byggt á tvenndarkerfinu en ákveðinn geislalitur myndi tákna 0 og annar 1. Tölvueindir þessar úr próteinum, er hægt að vinna á bæði lárétt og lóðrétt, sem auðvitað gefur miklu meiri möguleika en t.d. kubbar dagsins í dag gera. Sennilega yrði varla hægt lengur að tala um kubba í þessu efni, þar sem hér yrði um að ræða einhvers konar próteinlög, þar sem unnið yrði á eitt „lag“ í einu. Fyrirferðin minnkar náttúrlega verulega, sem gerir tölvurnar enn minni en um leið öflugri. Sjálft próteinið mun geta geymt upplýs- ingar í 2 ár. Tölvur sem gerðar yrðu með þessum hætti, eru taldar verða 1000 sinnum hraðari í vinnslu en núverandi tölvur, geta geymt 300 sinnum meira magn upplýsinga, nota verulega minni orku, en notkun þeirra yrði engu að síð- ur, jafn einfold og núverandi talva. Og menn eru farnir að hugsa enn lengra. Næsta skref yrði tölvur, sem byggðu á DNA, það er efni genanna. Þær tölvur yrðu nánast ótrúlegar miðað við það, sem við þekkjum í dag, og ynnu á talsvert annan hátt. í fyrsta lagi myndu þær nota fjögur stafatákn í stað tveggja nú, en það yrðu bókstafirnir sem tákna grunnefnin, sem DNA í öllu lifandi efni byggist á, þ. e. genin. Menn segja þó að DNA- viðbrögðin séu óskaplega hæg- fara í samanburði við reikni- hraða hefðbundinnar tölvu, en það vinnst upp og vel það, af magninu. DNA-tölva, sem inni- heldur 50 grömm af genum er sögðu geta, fræðilega séð, reiknað 100.000 sinnum hraðar en hröðustu tölvur nútímans. Það kemur til af því að genaglasið rúmar billjónir DNA- einda, sem gefa milljarða viðbragða í einu. Vísindamenn segja að það megi líkja þessu við sláttu- vélar, sem slá ætti gras með í risagarði. Stærstu tölvur nútímans væru þá sláttuvél, sem gæti slegið þúsundir grasstráa á sekúndu. Samt tæki það marga daga að slá garðinn með slíkri sláttuvél. DNA-sláttuvélin saman- stæði hinsvegar af geysilegum fjölda smáhnífa, sem væru hálfan klukkutíma að skera niður eitt strá. En þar sem hnífafjöldinn gæti verið jafn fjölda grasstráanna í garðinum, þá tæki það einungis hálfan klukkutíma að slá þennan risagarð með þeirri sláttuvél. Hafa menn einnig sett upp, til fróðleiks, risadæmi, þar sem gengið er út frá þeim möguleika að maður ætlaði að heimsækja 25 borgir. Möguleikarnir á því í hvaða röð og eftir hvaða leiðum hann gæti heimsótt allar borgirnar, eru gríðarlega margir. Svo margir að það tæki hröðustu tölvur dagsins í dag 31 ár að reikna þá alla út. En DNA- tölva yrði ekki nema 2 vikur að því. Það má því segja að ýmislegt bíði kynslóða framtíðarinnar, sem okkur þykir næsta ótrúlegt í dag. Allt eru þetta möguleikar sem vísindamenn hafa fund- ið út úr eiginleikum og starfsemi sjálfrar náttúrunnar. Hún virðist eiga svör við öllu, svo fremi að nægilegur skilningur og þekking sé fyrir hendi til þess að greina möguleika og aðferðir hennar. Framhald á bls. 341 316 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.