Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Page 15

Heima er bezt - 01.09.1996, Page 15
þá nær eingöngu gert á Suðurlandi. Sá munur var nefndur á lifrarblóði og stein- blóði, að steinblóð hefði verið harð- storkið, en lifrarblóð minna storkið. Orðin augnblóð og skyndilifur um hleypt, soðið blóð eru til í talmálssafni Orðabókar Háskóla íslands og augnblóð í þessari merkingu er í orðabók Sigfúsar Blöndals, en dæmi um skyndilifur mun elst í orðasafni Hallgríms Scheving frá fyrri hluta 19. aldar. Einnig þekktist að meðhöndla kálfsblóð á þennan hátt. Það var hins vegar soð- ið í mjólk eða mjólkurgraut þegar búið var að hleypa það og sneiða það upp. Þessi matargerð hefur tíðkast hér í einhverjum mæli í fyrri tíð. Af heim- ildum þjóðháttadeildar má draga þá ályktun, að steinblóðsverkun hafi lengst haldist á Suðurlandi og þar hafi nafnið síðan færst yfir á mörlít- ið slátur því að orðið steinblóð var notað um mörlausan eða mörlítinn blóðmör i Rangárvalla- og Árnes- sýslu upp úr aldamótum. Jakob Benediktsson hefur fært rök að því að e.t.v. sé þetta upprunaleg- asta matreiðsla á blóði hérlendis því vegna mjölleysis hafi það ekki verið mjölvað framan af enda engar heim- ildir um slíkt frá fyrri öldum. Svipuð blóðverkun tíðkaðist í Færeyjum, nema þar var storkan sett í hjall eftir að búið var að sjóða hana, en hér var steinblóð geymt í súr. Þessi aðferð gæti verið af sömu rótum runnin á báðum stöðum eða allar götur frá landnámsöld. Þó að lítið sé orðið um blóðmatar- gerð aðra en blóðmör í seinni tíð rækja sumir þó ennþá gamla siði i þessu efni. Ég kom til dæmis á heim- ili á Barðaströnd fyrir nokkru, þar sem ævinlega er blóðgrautur í slátur- Heitt slátur og kartöflumús í kvöld- mat á ferðaþjónustubœ á Ströndum í síðustu sláturtíð. tíð. Hann er svo vinsæll að heiman- flutt börn matmóðurinnar þar á bæn- um láta ekkert hindra sig í að mæta þegar von er á grautnum góða. Að kasta út mörsiðrinu í máldaga Þykkvabæjarklausturs frá því um 1340 er talað um 20 iður feita mörs og hálfan sjötta tug megri mörs. Hér er væntanlega um að ræða vambaiður með einhverju sem er mismörvað, líklega blóðmör, því að a.m.k. á seinni öldum var nær ein- göngu blóðmör og lifrarpylsa í vambaiðrum. Áður fyrr virðist hafa verið mun algengara að tala um iður í merkingunni sláturkeppi. Mörsiður koma víðar við sögu. í viðauka Heiðarvíga sögu segir t.d. frá því þegar menn í herkví köstuðu síðasta mörsiðrinu út til umsáturs- manna svo að þeir mættu halda að nógur matur væri inni fyrir. „En af þessu tiltæki Barða er sá orðskviður kominn að kalla, að sá kasti út mörsiðrinu, sem tekur til síðustu úr- ræða,“ segir í sögunni. í fyrstu íslensku matreiðslubókinni sem gefin var út árið 1800, er upp- skrift af blóðmör. Blóðið er þar þykkt með hafra- eða bygggrjónum, kryddað með kjörvel, blóðbergi, pipar eða negulnöglum, lauki og rúsínum bætt í fín- ni pylsurnar. Þetta var sett í nautagarnir, soðið og borðað heitt með smjöri, en óvandaðri pylsur voru ókryddaðar og saltað- ar hráar niður í kvart- il. Ólíklegt er að margir hafi tekið upp þennan hátt hér enda sést hann ekki í heim- ildum þjóðháttadeild- ar fremur en margt annað sem lýst er í kverinu. Nautagarnir voru afar lítið notaðar undir blóðmör hér, og helst ekki fyrr en vambir þraut. Mun á blóðmatargerð hér og erlendis er þannig lýst í öðru íslensku 18. aldar riti að útlenskir setji blóð í garnir á meðan íslendingar sníði og saumi til þess vambir. Þar er uppskrift að blóðmör svipuðum og í vasakverinu, hann er falinn upp í garnir og saltað- ur, enda tekið fram að um norska matreiðslu sé að ræða. Norskur blóðmatur í norskum fornbréfum kemur við- urnefnið blóðmör fyrir í tvígang, þar eru þeir nefndir annars vegar Reiðarr blóðmör og hins vegar Jón blóðmör. Ef marka má íslensk fornrit hefur verið töluvert um það hér að menn væru háðulega uppnefndir af meint- um matarvenslum, hvort heldur um var að ræða græðgi viðkomandi í einhvern ákveðinn mat, eða bara að einhver líkamsbygging minnti á mat- rétti. Dæmi um þetta eru t.d. Þórar- inn grautnefur, Kári mör, Helgi byggvömb, Kolbeinn smjörreður, Karl kjötlær, Guðleikur flotbytta og Hákon mörstútur. Vegna þessara fornnorsku pilta, sem kennndir voru við blóðmör, gætu menn að óathug- uðu máli, freistast til að halda að blóðmör á borð við þann sem við þekkjum hafi einhvern tíma verið til í Noregi. En nútíma blóðmör, þ.e. - faþZHeima er bezt 327

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.