Heima er bezt - 01.09.1996, Síða 30
Umsjón: Ingvar Björnsson
Þriðji ársijórðungur 1996
Landshluti: Norðurland
Verðlaunaáskrifandi:
Björg Margrét Indriða-
dóttir, húsfreyja,
Kvistási í Kelduhverfi,
N-Þingeyjarsýslu.
Verðlaun: Skriðuföll og
snjóflóð, 3 bindi.
Björg Margrét Indriðadóttir.
Er ég næ tali af Björgu legg ég fyrir
hana hefðbundnar spumingar þessa
þáttar og svör hennar við þeim eru á
þessa leið:
„Ég heiti fullu naíhi Björg Margrét
Indriðadóttir, í daglegu tali bara kölluð
Björg og er húsffeyja hér að Kvistási í
Kelduhverfi. Ég er fædd 25. maí 1930,
að Lindarbrekku og þar ólst ég upp.
Foreldrar mínir voru hjónin Indriði
Hannesson, fæddur 1902, d. 25. sept-
ember 1963, frá Kelduneskoti, og
Kristín Jónsdóttir, fædd 18. ágúst
1906, ffá Keldunesi. Hún lést fyrir
nokkrum árum.
Hinn 12. nóvember 1952, giftist ég
Haraldi Þórarinssyni ffá Ólafsgerði,
fæddum 28. maí 1928. Hann ólst upp í
Austurgörðum og að Laufási, en þar
byggðu foreldrar hans nýbýli.
Foreldrar Haraldar voru hjónin Þór-
arinn Haraldsson ffá Austurgörðum,
fæddur 1902, og Kristjana Stefáns-
dóttir frá Ólafsgerði, fædd 1896. Þau
eru nú bæði látin.
Sonur okkar er Indriði Vignir, fædd-
ur 15. júlí 1956 á Húsavík, en hefur
síðan dvalið í heimahúsum, fýrstu þrjú
eða fjögur æviárin að Laufási, en síð-
an hér að Kvistási.
Aðalstörf Haraldar hafa verið al-
mennar vélaviðgerðir á eigin verk-
stæði, bæði fyrir sveitungana og þá er
hér eiga leið um.
Til þessara starfa hefur hann komið
sér upp, hér að Kvistási, myndarlegu
verkstæði ásamt nauðsynlegum verk-
færum.
Þar sem það er eðli ferðamannsins
að vera sífellt að flýta sér, þá hefur það
í för með sér að vinnutími Haraldar er
offar bundinn við að ljúka viðgerð en
því hvað klukkan tifar. Það leiðir líka
til þess að margir koma hér í eldhúsið
og fá kaffisopa áður en þeir hleypa úr
hlaði, aðrir borða gjaman með okkur
og enn aðrir gista nóttina hér, þegar
mest lætur.
Það fer ekki hjá því að störf Harald-
ar auka vemlega á annir húsffeyjunn-
ar, sem þarf óforvarandi að hafa til
342 Heima er bezt