Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Page 31

Heima er bezt - 01.09.1996, Page 31
á Fjöllum) og þannig var það allt til 1959, er vegur opnaðist með brú á milli Mývatns og Grímsstaða. Um þetta má lesa í Heima er bezt, 6.-7. tbl. 1983, á blaðsíðum 225-227, í viðtali, sem þar birtist við móður mína. Hinn 20. október 1959, bað þáver- andi kaupfélagsstjóri á Kópaskeri, Þórhallur Bjömsson, móður mína um að annast rekstur hótelsins þar í einn mánuð og auðvitað brást hún vel við þeirri bón. Þessi mánuður varð að vísu óvenju langur, því honum lauk ekki fyrr en 30. apríl 1980, eða eftir rúmlega 21 ár. Það er varla ofsögum sagt að sveitin hér sé falleg og hafi upp á margt að bjóða. Hér er jú Ásbyrgi, Vesturdalur- inn, heiðin sunnan byggðar, ---- en þar er vegurinn sem notað- ur er við haustleitimar og margir nýta sér. Þaðan er nán- ast ómælt útsýni til hafs, eða svo langt sem augað eygir,“ segir Björg að lokum. Viðauki: Það má vera að mörgum finnist það skrýtið að hvergi sé gerð grein fyrir því hvar bæimir, sem nefndir eru hér að framan, em staðsettir. Rétt er nú það, en þetta kemur til af því að þessir bæir allir, þ.e.a.s. Lindarbrekka, Keldu- neskot, Keldunes, Ólafsgerði, Austurgarðar, Laufás og Kvistás, voru einfaldlega allir í Kelduhverfi. Ég segi vom, því sumir þeirra munu nú ekki byggðir lengur. Ég fór þessa leið af tveim ástæðum: Ég vildi forðast endurtekningar orðs- ins Kelduhverfi og ég vildi vekja at- hygli á því að allir þeir, sem hér em nafngreindir, vom úr Kelduhverfinu. Orð Bjargar um fegurð sveitarinn- ar tel ég staðfestast í því að engum hér, nafngreindum, virðist hafa kom- ið það til hugar að hætta á að leita sér maka utan sveitar, vegna hætt- unnar á að hann, eða hún, yrðu að yfirgefa sitt fagra Kelduhverfi. góðgerðir fyrir óvænta gesti. Hins vegar veldur þetta því líka, að við hjónin höfum eignast marga og góða vini og kunningja og yfir því gleðj- umst við innilega. Hvað félagsmál og félagsstörf mín varðar er ekki margt að segja. Auðvit- að er ég í kvenfélaginu hér og svo er ég í skógræktarfélaginu og þó að ég sé bara óbreyttur liðsmaður þessara félaga, em ýmis störf og snúningar, sem til falla þar og veita gleði og ánægju, t.d. tekur kvenfélagið oft að sér tijáplöntur, svo eitthvað sé nefnt. Þegar svoleiðis nokkuð kemur upp á, drífur maður sig til starfa. Þegar lax- eldið kom hér til, skapaðist aðstaða fyrir heimavinnandi húsmæður til að bregða sér af bæ og vinna tíma og tíma, utan heimilis. Eins og fleiri brá ég mér þama í vinnu, sem ég hafði lengi hlakkað til að gera, en því miður varð þetta stutt gam- an því heilsan brást mér, svo ég varð að hætta fyrr en varði. Þetta olli mér mikl- um vonbrigðum, enda kom það mér mjög á óvart. Já, svona er lífið oft dyntótt. Helsta áhugamál mitt er að gera eitthvert gagn í líf- inu. Skólaganga mín var hefð- bundin skólaganga sveita- stúlku, þ.e.a.s. ég gekk hér í venjulegan skóla. Einn vet- ur var ég síðan í húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði og hafði bæði gagn og gaman af því. Til viðbótar því, sem ég sagði um foreldra mína, langar mig til að nefna það hér að þau reistu veitinga- og gistihús að Lindarbrekku. Það var þrí- lyft hús, er tekið var í notkun árið 1933. Húsið ráku þau saman meðan bæði lifðu en er faðir minn andaðist tók móðir mín ein við rekstri þess og rak það til 1959, er því var lokað. Þetta hús bætti úr brýnni þörf því allt til ársins 1959 urðu allir, sem aka vildu milli Vestur- og Austurlands, að koma hingað, því hér var eina öku- færa brúin yfir Jöklu gömlu (Jökulsá Haraldur Þórarinsson, eiginmaður Bjargar Margrétar. Kvistás. Indriði Vignir Haraldsson með geithafur. Heima er bezt 343

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.