Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.09.1996, Qupperneq 33
Bergur Bjarnason, kennari: 16. kluti Og nú held ég þá áfram um stund að segja ykkur ofurlítið meira um leiki okkar drengjanna á Völlum, eins og ég lof- aði ykkur síðast. Þegar fullorðna fólkið hafði lokið við að reka sitt fé á fjall, langt fram til heiða, sem var auðvitað um sama leyti og hjá okkur, var farið að ham- ast við að undirbúa mikilvægasta starf sumarsins, heyskapinn. Eins og þið getið nærri þurftum við þá að gera það líka því að vitaskuld urðum við að eiga nægilegt fóður til vetrar handa búfénaði okkar. Þegar heyskapurinn var svo hafinn unnum við strákarnir að sjálfsögðu með fullorðna fólkinu eftir bestu getu, en fúndum þó alltaf einhverjar stundir öðru hverju, til að vinna að okkar eigin heyskap og var það ætíð látið afskiptalaust. Ég man vel að við beittum ósköp frumstæðum aðferð- um við þennan heyskap okkar, reytt- um upp grasið með berum höndum, skárum það með hnífum eða klippt- um með skærum þegar best lét. Orf og ljá máttum við auðvitað ekki snerta á þeim árum. Og þegar heyskap lauk að hausti höfðum við alltaf safnað töluverðu fóðri við ijárhús okkar því að auðvit- að urðum við að eiga góð Qárhús og ég man ekki til að við yrðum nokkurn tíma heylausir. Sauðfé okk- ar var víst duglegt að bjarga sér og því einkar létt á fóðrum, enda minnir mig að við ættum oftast miklar fyrn- ingar. Og svo hófust göngurnar. Piltarnir, Seinni hluti. stórir og duglegir strákar, sem voru 14 til 16 ára, fóru í raun- verulegar göngur og ráku féð af ijalli. Það var trúnaðarstarf sem allir hraustir strákar þráðu að fá að leysa af hendi, ævintýri, sem var eftirsókn- arverðara en flest annað. En meðan við félagarnir vorum litlir, fórum við á sama tíma í okkar eigin göngur og það var líka ákaflega gaman. Við riðum um allt afréttar- landið á gæðingum okkar og söfnuð- um saman öllu því fé sem við fund- um, en því miður voru heimtur stundum ekki góðar. Óhræsis tófan hafði áreiðanlega tekið sumar kindur okkar og aðrar höfðu fallið í dý og drukknað. En ekki þýddi að fást um það, við vissum að þetta var algengt á flestum búum í sveitinni. Og nú fór sláturtíðin í hönd með umstangi sínu og erfiðleikum. Það er mikið frásagnarefni að segja frá henni og störfunum mörgu við hana. En það verður að bíða að sinni. En auðvitað gátum við strákarnir hjálp- að þar til á margan hátt. Við þurftum alltaf að sjálfsögðu, að lóga nokkrum skepnum okkar á hverju hausti eins og fullorðna fólkið gerði, en fylltum jafnan í skörðin. Var það oftast auðvelt þar sem fram- boðið var svo mikið í sláturtíðinni á því fé, sem við þurftum á að halda. Við þennan búrekstur okkar und- um við oft lengi á öllum árstímum, og á vissu árabili munum við ekki hafa varið meiri tíma til neinna ann- arra leikja. En auðvitað lékum við okkur oft á ýmsan annan hátt, eins og Heima er bezt 345

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.