Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1996, Síða 38

Heima er bezt - 01.09.1996, Síða 38
hússins á síðastliðnum degi, horfa ekki hátt, á meðan þau heilsa henni og ganga sneypuleg og niðurlút til sæta sinna. Síðust kemur Bergrós inn í skólastofuna. Hún gýtur augunum flóttalega til beggja hliða um leið og hún heilsar kennslukonunni og hverf- ur hljóðlega í sæti sitt. Hún hefur aldrei verið ráðvilltari né óöruggari með sjálfa sig en nú, þrátt fyrir góð og traustvekjandi orð og athafnir kennslukonunnar, eftir að fundum þeirra bar saman í anddyri gamla hússins. Ef til vill er hún einmitt svona vegna þess að kennslukonan er komin í málið. Hún fékk óblíðar mót- tökur hjá móður sinni við heimkom- una á síðastliðnum degi. Móðir henn- ar var ofsareið og krafði hana skýr- inga á því, hvers vegna hún kæmi svo seint heim úr skólanum. Hún hefði marg sagt henni að koma strax heim að kennslu lokinni og gæta tvíbura- bræðranna, á meðan hún brygði sér út með Fríðu á efri hæðinni. En það tækifæri væri glatað og allt fyrir svik- in úr henni. Hún Málfríður á efri hæðinni hefði ekki mátt vera að því að bíða eftir neinu drolli. Hún væri farin út fyrir löngu, þá loksins að bamfóstrudruslan í kjallaranum skil- aði sér heim úr skólanum. Hún gaf engar skýringar, dróg sig inn í skel þagnar og sljóleika, á með- an móðir hennar skeytti skapi sínu á henni fyrir svikin. Hún hafði ekkert svikið. Aðrir höfðu gripið þarna inn í og heft heimfor hennar með þeim gjömingum, sem voru henni ofviða. En sitthvað þessu líkt hafði áður gerst og hún mátt þola skammir og meiðingar fyrir annarra sök. Hún mundi síðast af öllu segja foreldrum sínum frá eineltinu í skólanum. Ekki eingöngu af ótta við hótanir krakk- anna, ef hún klagaði þá heima hjá sér, heldur óttaðist hún miklu fremur viðbrögð foreldra sinna, ef upp kæmist. Hún óttaðist að móðir sín kynni að rjúka til Arnmundar skóla- stjóra og hleypa öllu í bál og brand í skólanum, en faðir sinn gómaði krakkana, hvar sem hann næði til þeirra, og berði þau jafnvel til óbóta, ef hann væri ölvaður. En hún átti ekki von á því að foreldrar hennar gerðu þetta, sem hún óttaðist mest, af einskærri ást og umhyggju fýrir henni, heldur miklu fremur til þess að geta náð sér niðri á fólkinu í þorp- inu, sem var yfirleitt ekki að þeirra skapi, nema nokkrir drykkjufélagar. Telpan hrekkur snögglega upp af þessum hugarórum. Kennslukonan stendur við skólatöfluna og beinir orðum sínum þaðan til hennar: „Bergrós, komdu hingað til mín,“ segir hún þýðlega. „Þú átt að reikna þetta dæmi, sem skrifað er á töfl- una.“ Telpan lítur í kringum sig, líkt og hræddur fugl og hreyfir sig ekki strax. Skólataflan er einhver mesti þyrnir í augum hennar, innan veggja kennslustofunnar. Fyrir framan þessa töflu hefur hún þráfalt orðið að at- hlægi bekkjarsystkinanna, sakir van- kunnáttu sinnar og það hefur skilið eftir djúp sár. Kennslukonan hefur um nokkurn tíma að undanfornu, hlíft henni við slíkri niðurlægingu og kvöl. En því ekki núna, þegar hún er ráðvilltari en nokkru sinni fyrr? Hún verður víst að hlýða. Bergrós rís seinlega á fætur og gengur þung- um skrefum upp að töflunni, þangað sem kennslukonan bíður hennar. Hún fær hlýtt og uppörvandi bros um leið og kennslukonan leggur krítina í lófa hennar og segir glaðlega: „Gjörðu svo vel, Bergrós." Telpan svarar engu og snýr sér að töflunni. Reikningsdæmið stendur þama stórum, hvítum stöfum á svört- um bakgrunni. Hún starir nokkur andartök í algeru vonleysi á þetta rúnaletur, og tölustafrimir renna sam- an í eitt fyrir augum hennar. Henni finnst eins og hún sé stödd á ystu nöf hengiflugs og eigi ekkert annað eftir an steypast fram af. Hana svimar. Svona slæmt hefur þetta aldrei orðið áður. En skyndilega er hönd lögð mjúklega yfir herðar henni, eins og til að gefa henni stuðning. „Bergrós mín, gefðu þér nægan tíma. Þú getur vel reiknað þetta sam- lagningardæmi.“ Telpan lítur snögg á kennslukon- una og mætir jafskjótt einbeittu, hvetjandi augnaráði hennar, augna- ráði, sem segir meira en orð. Örygg- iskenndin, sem vaknaði í bijósti hennar á meðan hún naut samfylgdar kennslukonunnar á heimleiðinni frá anddyri gamla hússins, síðast liðinn dag, vaknar að nýju við þennan trausta stuðning og afgerandi hvatn- ingu kennslukonunnar. I sömu andrá heyrir hún lágt pískur og niðurbæld- an hlátur að baki sér. Kennslukonan skipar þögn í skólastofunni. En þetta pískur og niðurbældi hlátur, verkar þveröfugt á Bergrósu, við það sem áður hefur verið. Nú stælir það hana í stað þess að brjóta hana niður. Hún ætlar ekki að skemmta bekkjarsystk- inum sínum í þetta skipti, með upp- gjöf. Hún strýkur höndinni yfir aug- un, eins og til þess að skerpa sjónina. Svo útilokar hún ffá sér allt, sem glepur og einbeitir huganum að sam- lagningardæminu á töflunni. Tölu- stafrirnir renna ekki lengur saman í eitt, heldur standa þarna skýrir, að- gengilegir og ögrandi. Hún byrjar að reikna, leggur eina töluna við aðra og þannig koll af kolli, uns lokaútkom- an blasir við á töflunni. Kennslukonan rýfur þögnina: „Rétt reiknað hjá þér, Bergrós, ég vissi að þú gast þetta,“ segir hún og sendir nemanda sínum geislandi við- urkenningarbros. „Sestu nú aftur í sæti þitt.“ Telpan snýr í fyrsta skipti frá þess- ari skólatöflu, sem sigurvegari. Því fylgir góð tilfinning, og nú hlær eng- inn í bekknum. Skóladagurinn líður með venjulegum hætti. Börnin þijú, sem mættu sakbitin og óttaslegin að morgni, hafa ekki fundið fyrir neinu í viðmóti kennslukonunnar, sem gæti bent til þess að þeirra biðu yfir- heyrslur hjá henni og refsing. Þau hafa því tekið gleði sína að nýju. Síðasta kennslustundin er á enda. Glóey Mjöll snýr sér að börnunum þremur og biður þau að sitja eftir í skólastofunni. Hin eru frjáls ferða sinna. Endurheimt gleði þremenn- inganna hverfur snöggt. Hrædd 350 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.