Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1947, Page 23

Æskan - 01.12.1947, Page 23
Jólablað Æskunnar 1947 mína. Finnst þér ekki ljótt af lionuni a'ð laka af hjólið? Hann hefur kannske þurft að nota það. — Nei, hann þurfti ekkert að nota það. Hann varð bara svona vondur. Hann sagði, að presturinn væri í kaupfélaginu og hann skyldi engar appelsinur fá frá sér, og svo fengi ég engar karamellur, þvi að ég væri flón. — Hvaða prest ertu að tala um, Jói ininn? s])urði ég. — Nú, prestinn. Þennan Kjartan. — Er hann prestur? spurði ég. — Það er vist, svaraði .Tói kæruleysislega, eins og það kæmi málinu lítið við. — Jæja, Jói minn, sagði ég, fórstu svo að sækja appelsinurnar, eða livað? — Já, sagði Jói. — Og gekk þér eitthvað illa. Fékkstu þær ekki? spurði ég. — Ekki allar. Það það var búið að éta þær, sagði Jói og byrjaði enn að skæla. Ég sagði, að sá, sem ætti að fá þær héti Lárus, en konan hans héti. Sigrún og húsið þeirra væri með stórum kvisti. En presturinn bara hló að mér og sagði, að ég gæti víst fengið það sem eftir væri. Þetla iiefðu nú ekki verið nein ósköp, það væru margir munnar hér, sagði hann. Svo kom hann með pokann, en hann var ekki orðinn nema hálfur, og ]iað var meira að segja búið að rifa pokann. Það átti ekkert með að éta svona mikið af appelsínunum. Finnst þér það? — Já, það hélt auðvitað að það ætti þær, sagði ég. — Nei, það hélt ekki, að það ætti þær. Ég sagði strax, að hann héti Lárus. — Jæja, fannstu ]iá þennan Lárus og húsið hans? spurði ég. — Nei, ég þorði ekki að finna það, þegar búið var að éta af appelsinunum, sagði Jói. — Fórstu þá með þær aftur til Péturs? — Nei, ég þorði það elcki, þegar búið var að éta af þeim. Ég þori heldur ekki að sælcja töskuna mina. Eg þori aldrei framar að koma til Péturs. — Nú, livernig ætlarðu að fara að þessu, drengur ? Það veit ég ekki, sagði Jói. — Jæja, Jói minn, það er þá bezt, að ég komi með þér. Við skulum bara færa Pétri það, sem eftir er af appeísinunum. Ég skal koma með þér. 133

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.