Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1947, Síða 33

Æskan - 01.12.1947, Síða 33
Jólablað Æskunnar 1947 jólabækur Isafoldar 1947. 1. Sögur ísafoldar. Björn heitinn Jónsson var snillingur á íslenzkt mál og bókmennta- smekkur hans góður. Sögurnar, sem hann þýddi í ísafold, Iðunni gömlu og víðar, náðu alþjóðarhylli og hafa menn spurt um endur- prentun á þeim árum saman. Nú verður end- urprentað úrval þessara sagna, sem Sigurður Nordal velur. 1. bindi kemur út fyrir jólin. 2. Dalalíf II. Fyrir jólin í fyrra kom út bók eftir íslenzka alþýðukonu, sem vakti óskipta at- hygli og góða dóma. Það var Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi. Fyrir þessi jól kemur niðurlag bókarinnar. 3. VirkiS í norðri. Þessi bók hefur vakið meira umtal en nokkur önnur íslenzk bók á síðari árum. Fyrri hlutinn kom i vor. Nú kemur niðurlag bókarinnar og mun vekja ekki minni athygli en fyrri hlutinn. 4. Úr byggðum Borgarfjarðar II. Allir kannast við fræðimanninn Kristleif Þorsteinsson á Stóra-Kroppi. Nú fyrir jólin kemur annað bindi af ritum hans: Úr byggðum Borgar- fjarðar. 5. Bænabók, bænir frá öllum öldum kristn- innar. Síra Sigurður Pálsson í Hraungerði býr bókina undir prentun. Til bókarinnar hefur verið vandað sem bezt mátti verða, og meðal annars eru þar birtar myndir af nokkrum feg- urstu gripum íslenzkra kirkna frá miðöldum. 6. Vinir vorsins, barnabók eftir Stefán Jónsson, vinsælasta rithöfundinn, sem nú ritar barna- bækur. Fjöldi gullfallegra mynda eftir Hall- dór Pétursson. 7. Ævintýri og sögur eftir Ásmund Helgason frá Bjargi. Falleg ævintýri, sem hafa gengið og munu ganga mann frá manni, skráð og óskráð. 8. Leyndardómur Indlands, stórmerk bók eftir Bruton. 9. Á langferðaleiðum, ferðasögur eftir Guðmund Daníelsson rithöfund. Á árinu 1946 fór Guð- mundur til Bandaríkjanna, ferðaðist þar frá hafi til hafs og lenti í ýmsum skemmtilegum ævintýrum. Frá þeim ævintýrum er sagt í bók hans. 10. Frú Bovary eftir Gustave Flaubert, og margar fleiri ágætar bækur. BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDAR „Um bíla, hafskip, flugvélar og borgir dreymdi hann". Ljóðið um Labbakút er ástarjátning ævintýradrengsins til Islands, til pabba og mömmu, afa og ömmu. Pað mun óma í sálum ykkar viá ýmis tækifæri í ykkar eigin lífs- ævintýri löngu, löngu eftir aá þið hafiá lesiá þaá. Fæst hjá bóksölum. Útgefandi Þórhallur Bjarnarson, Hringbraut 173, Reykjavík. 143

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.