Æskan - 01.11.1964, Síða 24
ÆSKAN
if GRACE KELLY er fædd í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum
12. nóvember 1929. Hún kom
fyrst fram i smá leikliúsum,
en fyrsta kvikmyndalilut-
verk sitt fékk liún árið 1951.
Varð heimsfræg stjarna á
mjög skömmuin tíma, en
hætti að leika árið 1956,
þegar hún giftist furstanum
af Monaco.
Myndir eru framkallaðar að kvöldi hvers dags, og eru hirtar af þeim þær
áhrifamestu og heztu, skeyttar saman og reyndar, svo að yfirlit fáist. Eftir
úrslitafilmunni eru gerðar eftirmyndir, sem sendar eru út um heim allan.
INN Á EITT SVIÐIÐ
Þá leggjum við af stað í sjálft verið. Fyrst verður fyrir okkur húshákn
mikið, og virðist í fljótu hragði vera fiugvélaskýli, en undir þaki þess eru
reyndar leiksviðin fyrir myndagerðina. Þarna standa uin þrjátíu slík hús-
bákn. Við höldum inn á eitt sviðið í einum af þessum skálum, þar sem verið
er að taka eitt atriðið í nýja kvikmynd. Fyrst þegar komið inn, virðist sem
liér sé eins konar skrangeymsla. Á víð og dreif um gólfið liggja eða standa
alls konar húsmunir og liúshlutar. Á bak við uppreist þil hirtist lieilt liúsa-
liverfi, með túnblettum og görðum í kring. Þetta kemur svo eðlilega fyrir,
að maður tekur það fyrir góða og gilda vöru, og þegar á léreftið er komið,
er ómögulegt að sjá, að grös og hlóm, hús, liáisar og fjöll séu frekar sniðin
og dregin með iitum en að liér sé um raunveruleikann að ræða. Margt er
liér af fólki og flest verklaust. Fjórir menn lilaupa fram og aftur um sviðið.
Það er leikstjóri og Ijósameistarar, sem liafa í mörg horn að lita. Þegar horft
er upp i loftið, sjáum við, að þar er mikið véla- og lijólavafstur. Þar er
komið fyrir öllum helztu tækjum til lýsinga, einnig inyndavélum. Til að prófa
ljósin á sviðinu eru fengnar sérstakar fyrirsætur, konur og karlar, svo að
sjálfir leikararnir þreytist ekki um of áður en leikurinn hefst.
£ VIÐBÚIN MYNDATÖKU £
Leikararnir hafa alla sina hentisemi á meðan undirbúningur fer fram.
Þeir ýmist labba um, sitja að kaffidrykkju eða flatmaga á legubekkjum. Allt
i einu kemur kallið frá kvikmyndastjómnum, sem heíur tekið sér sæti þar,
sem hann hefur yfirsýn yfir allt sviðið. „Verið viðbúin myndatöku 1“ kallar
hann. Leikarar gerast sumir liálf taugaóstyrkir og laga á sér flibha, bindi eða
hárgreiðslu um leið og þeir skipa sér inn á sviðið. Ljósmyndari og Jiljóð-
upptökumaður kinka kolli. „Allt i lagi. Snúið 1“ kallar kvikmyndastjórinn. Vél-
arnar byrja að snúa filmum sínum svo hægt, að ekki lieyrist. Leikarar hafa stillt
sér á sviðið. Myndatökumenn halla sér fram á vélarnar, sem ganga á gúmmí-
hjólum. Kastljósum liefur verið varpað á sviðið. Leikarar fara á lireyfingu,
tala, hlæja, gráta. En þessu heldur ekki lengi svona áfram, því að allt i einu
kallar leikstjórinn: „Hættið!“ Ekki er allt með felldu. Einhver leikaranna
liefur gert einliverja skyssu. Þannig verður oft að endurtaka sama atriðið
mörgum sinnum til þess að þóknast vilja liins stranga leikstjóra. Þannig
getur það tekið nokkuð mislangan tíma að ljúka töku myndar, sem er að
meðaltali samsett af 75 þúsund einstökum myndum og tekur um 90 mínútur
að sýna í kvikmyndaliúsum. Þá liöfum við kynnzt nokkuð myndatökunni, og
nú höldum við út á lóðina í liringum þetta stóra hús. Hérna sjáum við flestar
tegundir byggingarstíls, gatnagerðar, alls konar mannvirki frá flestum þjóð-
um og tímum. Þar eru stór stefni af skipum, kornhlaða, skemmtigarður,
járnbrautarstöð o. fl. Með öðrum orðum allt á ipilli liimins og jarðar í
smækkaðri mynd.
356
Uppruni Á L F A.
Einhverju siuni kom Guð almáttugur
til Adams og Evu. Fögnuðu þau honum
vel og sýndu lionum allt, er þau áttu innan
stokks. Þau sýndu lionum líka börnin sin,
og þótti honum þau all efnileg. Hann spurði
Evu, hvort þau ættu eklci fleiri börn en
þau, sem liún var húin að sýna honum.
Hún kvað nei við. En svo stóð á, að Eva
hafði ekki verið búin að þvo sumum börn-
unum og fyrirvarð sig því fyrir að láta
sjá þau og skaut þeim fyrir þá sök undan.
Þetta vissi Guð og sagði:
„Það, sem á að vera hulið mér, skal verða
hulið fyrir mönnum.“
Þessi liörn urðu nú mönnum ósýnileg, og
hjuggu þau i holtum og hæðum, liólum og
steinum. Þaðan eru álfar komnir, en menn-
irnir eru komnir af þeim börnum Evu, sem
hún sýndi Guði. Mennskir menn geta aldrei
séð álfa, nema þeir vilji sjálfir, því að
þeir geta séð menn og látið menn sjá sig.
* * *
Bóndinn Á GNIJPUM.
Bónda einn á Gnúpum i Þingeyjarsýslu
dreymdi, að honum þótti kona koma til
sín og kvarta yfir því, að börn hans
fleygðu grjóti i stöðuvatn eitt þar nærri,
því við það styggðist silungurinn, sem hún
ætti að lifa af. Bóndi skeytti þessu elilii
og þótti þess ekki þörf að banna börnum
sinum alvarlega athæfi þeirra; fóru þau
þvi liinu sama fram eftir sein áður, að
þeyta steinum i vatnið. Hin sama kona
kom þá í annað sinn til hóndans í svefni
og hótaði lionum að hefna sin.
Veturinn eftir bar það við eitt kvöld, að
allir gluggar voru brotnir á bænum. Bóndi
þaut út til að sjá, hver hefði leikið þennan
linyltk, en liann sá engan, og ekki heldur
nein spor í snjónuin, er var nýfallinn,
livorki eftir menn né skepnur. í annað
sinn var ljósið á borðinu drepið, eins og
með mannsliendi, án þess komið yrði auga
á neinn. Fór þá stúlka fram í cldhús að
kveikja aftur, en hún gat ekki komið ljós-
loga upp í eldstónni. Þrisvar reyndi hún
lil að kveikja og þrisvar var ljósið drepið
l'yrir henni aftur jafnharðan. Fór þá hónd-
inn sjálfur til, og honum tókst að kveikja
eftir langa mæðu. Eitt sinn var fleygt af
ósýnilegri hendi þungum og þykkum skóm
rétt við ennið á hóndanum, og við það
reiddist hann og fleygði skónum aftur i
sömu átt, er þeir voru komuir úr, en þá
var þeim grýtt aftur hálfu fastara en fyrr
i andlitið á bónda. Loksins fór mönnum
að standa stuggur af þessum aðförum,
svo að bóndi flutti ineð allt sitt burt af
hænum, en liann lagðist í eyði.